„Slökkvistarf gekk vel, allt brann“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. febrúar 2024 09:57 Slökkvistarf er yfirstandandi. Brunavarnir Árnessýslu Einbýlishús norðan af Flúðum brann til kaldra kola um hálfsjöleytið í morgun. Enginn var inni í húsinu þegar kviknaði í en tveir menn sváfu í frístandandi bílskúr við hliðina á. Slökkvistarf stendur enn yfir.
Vakthafandi hjá lögreglunni á Suðurlandi segir að rannsókn á eldsupptökum muni hefjast að slökkvistarfi loknu. Húsið var gamalt og verið var að gera það upp. Tilkynning berst frá nágranna sem sér eldinn og vekur mennina sem sváfu í bílskúrnum. Mennirnir komust út heilir á húfi en húsið er gjörónýtt. Húsið er gjörónýtt.Brunavarnir Árnessýslu Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir í samtali við fréttastofu að töluverðan tíma hafi tekið slökkviliðið að koma á vettvang vegna þess að ófært var upp að húsinu. „Það þurfti að hringja á næsta bæ og fá traktor til þess að ryðja fyrir slökkviliðinu. Það eru boðaðar út tvær stöðvar frá Brunavörnum Árnessýslu. Það er slökkvistöðin okkar sem er á Flúðum og önnur frá Reykholti,“ segir Pétur. Tilkynning barst um eld frá nágranna um hálfsjöleytið.Brunavarnir Árnessýslu Húsið stendur enn en er gjörónýtt. Slökkvistarf heldur áfram þar sem ekki er hægt að slökkva í öllum glæðum á meðan rafstraumur er enn á í rústunum. „Það er búið að vera að bíða eftir starfsmönnum Rarik til þess að taka rafmagn af,“ segir Pétur. „Starf slökkviliðsmanna er stundum misskilið. Þegar maður segir slökkvistarf gekk vel, allt brann. En starf slökkviliðsmanna gekk vel,“ bætir hann við.
Slökkvilið Hrunamannahreppur Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira