Lífið

Myndaveisla: Júlí Heiðar og Prettyboitjokkó í eina sæng

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Júlí Heiðar gefur út sína fyrstu sólóplötu á 22. mars næstkomandi á 33 ára afmælisdegi sínum.
Júlí Heiðar gefur út sína fyrstu sólóplötu á 22. mars næstkomandi á 33 ára afmælisdegi sínum.

Tónlistarmaðurinn og hjartaknúsarinn Júlí Heiðar Halldórsson fagnaði sinni fyrstu sólóplötu, Þrjátíu og þrír, með sérstöku hlustunarpartýi síðastliðið miðvikudagskvöld. Platan er væntanleg 22. mars á 33 ára afmælisdegi Júlís.

Platan var í fyrsta sinn spiluð í heild sinni í partýinu fyrir gesti sem fengu einnig að leggja fram hugmynd að uppröðun laganna sem vakti mikla lukku. Partýið fór fram á veitingastaðnum Blackbox.

Júlí Heiðar bauð í heljarinnar partý og leyfði gestum að hlusta á plötuna í heild sinni.Silla Páls
Kærustuparið Júlí Heiðar og Þórdís Björk.Silla Páls

Fyrsti síngúll plötunnar Farfuglar kom út 13. janúar síðastliðinn.

„Lagið fjallar um hve sárt það er að missa af mikilvægum stundum í lífi barna, svo sem afmælum, hátíðisdögum og öðrum gæðastundum á þessum fyrstu mótunarárum. Þessa miklu aðlögunarhæfni sem börn þurfa til þess að vera í jafnvægi á tveimur heimilum. Það erfitt að ímynda sér sem fullorðinn aðili hvernig hægt er að skipta svona um heimili í hverri viku.

Jafnvel þó ást og umhyggja sé alls staðar í kring getur rótin orðið frekar óskýr. Jákvæða hliðin er þó sú að í flestum tilfellum fjölgar fólki í kringum börnin, fólk sem elskar þau og er til staðar fyrir þau,“ sagði Júlí um lagið í viðtali á Vísi á dögunum.

Næsti síngúll plötunnar Heim kemur út 9. febrúar næstkomandi. Lagið verður frumflutt á úrslitakvöldi Idol í Idolhöllinni að Fossaleyni í beinni útsendingu á Stöð 2. Gestaflytjandi lagsins er tónlistarmaðurinn Patrik Snær Atlason, eða Prettyboitjokkó.

Meðal annarra tónlistarmanna sem koma að plötunni eru Huginn, Jói P, Gugusar og Kristmundur Axel.

Lagasmiðir plötunnar eru Júlí Heiðar, Ingimar Birnir, Ásgeir Orri og Bjarki Ómarsson, þekktur sem Bomarz. þá sáu Bjarki Ómarsson og Sæþór Kristjánsson um hljóðblöndun.

Líkt og meðfylgjandi myndir gefa till kynna var mikil stemmning í partýinu.

Patrik Snær AtlasonSilla Páls
Silla Páls
Huginn, Júlí Heiðar og Atli Már.Silla Páls
Ásgeir Orri og HildurSilla Páls
Tryggvi og SteineySilla Páls
Jói P og Molly.Silla Páls
Vilhjálmur B. BragasonSilla Páls
Ingimar Birnir ásamt föður sínum og vinum.Silla Páls
Huginn og Júlí Heiðar.Silla Páls
Aníta Rós og Kata VignisSilla Páls
Bjarki Ómarsson og Júlí HeiðarSilla Páls
Silla Páls
Júlí Heiðar og Atli MárSilla Páls
Silla Páls
Júlí Heiðar og Ingimar Birnir.Silla Páls
Aníta Rós og Björgvin Franz.Silla Páls
Gústi B og Patrik ásamt félaga.
Silla Páls
Ásgeir Orri.Silla Páls
Guðný Ósk.Silla Páls
Gústi B.Silla Páls
Silla Páls
Ásgeir Orri og Kristmundur Axel.Silla Páls
TryggviSilla Páls


Tengdar fréttir

Föðurland: „Finnst alltaf jafn ömurlegt þegar þeir fara“

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson segir erfitt að missa af mikilvægum stundum í lífi sonar síns og stjúpsonar þar sem hann hittir þá aðeins aðra hverja viku. Í lagi hans Farfuglar, sem kemur út á morgun, lýsir hann því hvernig það er að vera „pabbi í hlutastarfi“ og hversu mikið að hann þráir að verja meiri tíma með drengjunum tveimur.

Þór­dís og Júlí eiga von á barni

Listaparið Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir eiga þau hvort sinn soninn frá fyrri samböndum. 

Biður foreldra sína fyrirgefningar í nýju lagi

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar var að senda frá sér lagið Brenndur, sem fylgir á eftir hinu gífurlega vinsæla ástarlagi Ástin heldur vöku. Júlí frumflutti lagið í gær í beinni hjá Gústa B í útvarpsþættinum Veisla á FM957. Blaðamaður tók púlsinn á tónlistarmanninum og fékk að heyra söguna á bak við lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.