Lífið

Keyptu árið 2007 og eru ekki á leiðinni neitt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hafdís hefur komið sér einstaklega vel fyrir í Grafarholtinu.
Hafdís hefur komið sér einstaklega vel fyrir í Grafarholtinu.

Ný þáttaröð af Heimsókn með Sindra Sindrasyni hóf göngu sína á Stöð 2 í gærkvöldi.

Þá leit Sindri við hjá Hafdísi Rafnsdóttur sem er eigandi fasteignasölunnar Torg en hún býr ásamt eiginmanni sínum og börnum í fallegri eign við Ólafsgeisla í Grafarholtinu.

Þau hjónin fjárfesti í eigninni árið 2007, hafa búið þar síðan og eru ekki á leiðinni neitt. Þau segja nándin við náttúruna hafa verið það sem seldi þeim Grafarholtið.

Hér að neðan má sjá brot úr þætti gærkvöldsins og þessa fallegu íbúð í Reykjavík.

Klippa: Keyptu árið 2007 og eru ekki á leiðinni neitt





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.