Lífið

Hulunni svipt af Fröken Reykja­vík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóna Sigurjónsdóttir fæddist árið 1933 og lést árið 2013.
Jóna Sigurjónsdóttir fæddist árið 1933 og lést árið 2013. Björn Brynjúlfur Björnsson

Hulunni hefur verið svipt af því hvaða yngismær bræðurnir Jón Múli og Jónas Árnasynir höfðu í huga þegar þeir sömdu textann við lagið Fröken Reykjavík um miðja síðustu öld.

Björn Brynjúlfur Björnsson leikstjóri og framleiðandi svaraði spurningunni sem landsmenn hafa margir hverjir spurt sig um árabil. Hver er þessi stúlka engri lík sem gengur eftur Austurstræti og ilmar eins og vorsins blóm?

Björn Brynjúlfur upplýsir í umræðum í Facebook-hópnum Gamlar myndir að þar sé á ferðinni engin önnur en móðir hans heitin Jóna Sigurjónsdóttir.


Fröken Reykjavík

Hver gengur þarna eftir Austurstræti

og ilmar eins og vorsins blóm.

Með djarfan svip og ögn af yfirlæti

á ótrúlega rauðum skóm.

Ó, það er stúlka engum öðrum lík,

það er hún fröken Reykjavík

sem gengur þarna eftir Austurstræti

á ótrúlega rauðum skóm.

Og því er eins og hafi vaxið vorsins blóm á stræti.

Hver situr þar með glóð í gullnum lokkum

í grasinu á Arnarhól,

svo ung og djörf í ekta nælonsokkum

en ofurlítið flegnum kjól.

Ó það er stúlka engum öðrum lík,

það er hún fröken Reykjavík

sem situr þarna ung í ekta sokkum

en ofurlítið flegnum kjól.

Á meðan skín hin bjarta heita sumarsól af lokkum.

Hver svífur þarna suður Tjarnarbakka

til samfundar við ungan mann

sem bíður einn á brúnum sumarjakka

hjá björkunum við Hljómskálann?

Ó það er stúlka engum öðrum lík,

það er hún fröken Reykjavík

sem svífur þarna suður tjarnarbakka

til samfundar við ungan mann

sem bíður einn hjá björkunum við Hljómskálann, Hljómskálann.


„Þeir sögðu henni það bræðurnir en þau þekktust öll vel. Þannig var að hún hafði séð rauða skó í erlendu tískublaði en slíkt var ekki til í Reykjavík þeirra daga. Hún tók því skó sem hún átti og málaði þá eldrauða með málningu. Svo spígsporaði hún um göturnar og vakti óskipta athygli,“ sagði Björn Brynjúlfur og birti myndina að ofan af móður sinni á hennar yngri árum.

Ekki stóð á hrósyrðum frá meðlimum grúppunnar um hina fallegu Jónu og meðal annars upplýst að hún hafi verið kölluð Jóna fagra.

Lag þeirra Árnasona um Fröken Reykjavík þekkja svo til allir landsmenn. Ýmist upprunalegu útgáfu þeirra bræðra eða endurútgáfu Friðriks Dórs Jónssonar af laginu frá 2016 sem hefur notið mikilla vinsælda síðan það var gefið út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.