Samherji finnur not fyrir gamla Landsbankahúsið Jón Þór Stefánsson skrifar 21. desember 2023 10:10 Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson haf stofnað fyrirtækið Drift EA. Axel Þórhallsson/Þórhallur Jónsson/Samherji Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, hafa stofnað frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki sem verður til húsa í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Fyrirtækið mun bera nafnið Drift EA.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja. Þar segir að hjá Drift muni frumkvöðlar og fyrirtæki fá aðstöðu og stuðning við að vinna að hugmyndum sínum, bæði innan og utan landsteinanna. Þá segir að starfsemi Driftar EA verði lögð áhersla á verkefni á sviði matvælaframleiðslu, heilbrigðis- og lækningavöruframleiðslu, líftækni, hugbúnaðarlausna fyrir sjávarútveg og grænna lausna. Því er haldið fram að við undirbúning stofnunar félagsins hafi verið haft samráð við erlenda og innlenda aðila á ýmsum sviðum nýsköpunar. Sú vinna mun halda áfram á næstu mánuðum. „Á þessu ári eru liðin 40 ár frá því gengið var frá kaupum á Samherja hf. og Guðsteini GK breytt í frystitogarann Akureyrina EA. Frá þeim tímamótum hefur Samherji verið með stærstan hluta starfsemi sinnar við Eyjafjörð,“ segir í tilkynningunni. „Hjarta bæjarins. Drift EA er stofnað í tilefni þessara tímamóta og í þakklætisskyni við íbúa og fyrirtæki á starfssvæði Samherja. Tilgangurinn með stofnun Driftar EA er að gefa til baka til samfélagsins en um leið byggja upp ný fyrirtæki og atvinnugreinar á Eyjafjarðarsvæðinu.“ Líkt og áður segir verður starfsemin í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Húsið er í eigu fjárfestingafélagsins Kaldbaks, sem er að miklu leiti í eigu sömu aðila og Samherji, en félagið keypti húsið í nóvember á síðasta ári. „Við höfum alltaf verið með höfuðstöðvar Samherja á Akureyri, gert skip félagsins út héðan og verið með vel búin vinnsluhús á Akureyri og á Dalvík. Nú viljum við skapa frjóan jarðveg fyrir nýsköpun í þessu sögufræga húsi við Ráðhústorgið á Akureyri og styðja þannig enn frekar við uppbyggingu atvinnulífsins í okkar nærsamfélagi,“ er haft eftir Þorsteini Má Baldvinssyni í tilkynningunni.
Akureyri Nýsköpun Sjávarútvegur Landsbankinn Mest lesið Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Neytendur Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Viðskipti innlent Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Viðskipti innlent Sjálfbærnisviðið lagt niður og Erla Ósk hættir Viðskipti innlent Bjørn Richard til liðs við Athygli Viðskipti innlent „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ Atvinnulíf Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Bjørn Richard til liðs við Athygli Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Sjálfbærnisviðið lagt niður og Erla Ósk hættir Hafsteinn Dan nýr lagaprófessor við HR Ráðin nýr yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar Hafa ekki tekið ákvörðun um vaxtahækkun „Þetta hefur slæm áhrif á heimilin sem hafa augljóslega minna á milli handanna“ Flytja Friday's innan Smáralindar og fjölga stöðunum Kröfur upp á um 13 milljarða í þrotabú Skagans 3X Íslandsbanki hækkar líka vexti verðtryggðra lána Séreign inn á húsnæðislán hafi nýst sterkefnuðum mest Ver vaxtahækkunina: Ekki hægt að selja brauðið ódýrara en hveitið Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun Ekki króna í þrotabúi Base parking Alma sótti tvo milljarða Árni verður hægri hönd Decks Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Verðbólga fari undir fimm prósent í lok árs Hagkaup hefur áfengissölu í dag Ráðinn fjárfestatengill Icelandair Veðjuðu næst mest allra Evrópuþjóða Þungur róður hjá Samstöðinni Ráðin framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu Flugrisar funda í Hörpu vegna seinkana og aflýsinga Farþegafjöldinn í ágúst svipaður og á síðasta ári Kveður ostasnakkið fyrir Wolt Sjá meira