Í fréttatilkynningu um eigendaskiptin segir að handverksbakaríið Sesam Brauðhús hafi verið opnað í október árið 2011 og Valur Þórsson verið yfirbakarameistari bakarísins frá opnun þess. Í Sesam Brauðhúsi hafi verið lögð áhersla á gæðahandverk á öllum framleiðsluvörum bakarísins og unnið með fyrsta flokks hráefni frá fyrsta degi.
Í gegnum árin hafi vörur frá Sesam Brauðhúsi verið á boðstólnum víða um land og þá sérstaklega á Austurlandi.
Lostæti Austurlyst sé stærsta veitingaþjónusta í Fjarðabyggð og sinni meðal annars alhliðaveitingaþjónustu fyrir Alcoa Fjarðaál og fjölmörg önnur fyrirtæki á svæðinu og svo verði áfram. Eigandi Lostæti Austurlystar ehf. sé Valmundur Pétur Árnason, matreiðslumeistari.
„Fráfarandi eigendur og stjórnendur Sesam Brauðhúss þakka þeim þúsundum viðskiptavina sem hafa átt viðskipti við bakaríið öll þessi ár og óska á sama tíma nýjum rekstraraðilum bakarísins til hamingju með áfangann með von um bjarta framtíð.“