Þóra Rós heldur úti vefnum 101yoga.is þar sem hún miðlar reynslu sinni í faginu. Í samtali við Vísi segist hún spennt að fá að sýna lesendum Vísi mismunandi æfingar sem geta hjálpað til að losa um streitu og stress.
Fyrsta staðan er Öndun en Þóra segir að hún sé mikilvæg til að kúpla sig frá amstri dagsins og anda meðvitað. Leyfa huganum að róast, safna orku og róa taugakerfið. Þannig drögum við úr streitu.
„Það er mikilvægt að hlúa að okkur á hverjum degi og rannsóknir hafa sýnt að stunda jóga og hugleiðslu, skilar sér í betri líðan, meiri afköstum og aukinni ánægju í starfi. Ég ætla að kenna lesendum Vísis einfaldar æfingar sem hægt er að nýta hvar og hvenær sem er,“ segir hún.
„Jóga er svo miklu meira en bara hreyfing. Jóga gefur manni ýmis tól og tæki sem geta hjálpað okkur takast á við áskoranir og mótlæti sem koma upp í daglegu lífi. Fyrir mér snýst jóga um að vera meðvituð um öndunina, hugsanirnar og líkamann. Að geta valið hvernig ég ætla að eyða orkunni minni yfir daginn og næra hug líkama og sál,“ segir Þóra Rós.
Þóra er með síðuna 101yoga.is og þá er hún einnig virk á Instagram @101yogareykjavik.