Ekki nálægt því að uppfylla bókaþörf barnanna Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 9. desember 2023 15:20 Dröfn Vilhjálmsdóttir Vísir/Arnar Safnstjóri skólasafns Seljaskóla kannast ekki við að börn og unglinga skorti áhuga á lestri, þvert á móti geti fátæklegt úrval íslenskra bóka ekki mettað eftirspurn þeirra. Hún segir að styðja þurfi betur við íslenska barnabókahöfunda, helst þurfi að bera þá á gullstól.
Eftir að niðurstöður úr PISA könnuninni voru birtar í vikunni hefur farið fram kraftmikil samfélagsumræða um leiðir til að bæta lesskilning og kveikja áhuga unglinga á bóklestri. Dröfn Vilhjálmsdóttir safnstjóri skólasafns Seljaskóla til tíu ára kannast þó alls ekki við neitt áhugaleysi. „Ég finn fyrir miklum áhuga. Ég vildi að ég gæti sýnt ykkur áhugann og gleðina þegar ég fæ nýjar bækur sem þau eru áhugasöm um. Þá er liggur við slegist um eintökin. Ég fæ spurningar daglega. Þau biðla til mín um bækur sem ég á ekki til á íslensku.“ Ráðast þurfi í stórátak í þýðingu barnabóka. Dröfn segir alveg ljóst að ef bækur sem börnum finnst áhugaverðar er eru ekki til á íslensku, þá séu þær einfaldlega lesnar á ensku. Árleg tíu til fimmtán bóka útgáfa fyrir unglinga dugi ekki til að uppfylla bókaþörf þeirra. Afar brýnt sé að búa íslenskum barna- og unglingabókahöfundum betri skilyrði. „Berum þau á gullstól, ausum þau gulli. Þetta er svo mikilvægt. Við erum með frábæra barnabókahöfunda hér en það er ekkert hægt að lifa á þessu. Markaðurinn er svo lítill og samt erum við að láta markaðsöflin ráða.“ Börnin sjálf hafi enga rödd í slíku kerfi. Vill innleiða norsku leiðina Dröfn vill af þessum ástæðum fara að fordæmi Norðmanna sem líti svo á að Noregur sé örþjóð sem þurfi að vernda tungumálið. „Ríkið kaupir ákveðið mörg eintök af hverri útgefinni barnabók á norsku og síðan er þeim dreift á bókasöfn en það er hliðarafurð. Það mikilvægasta við þetta er að þarna stendur barnabókaútgáfan alltaf undir sér. Þá er ekki verið að hætta í miðju kafi eða hætta við að gefa út bók vegna þess að það sé ekki nógu mikið selt af henni. Með þessu mettar þú áhuga barnanna.“ Nú eru breyttir tímar og tæknivæðingin gegnsýrir samfélagið. Á netinu geti börnin auðveldlega sótt sér sérsniðna afþreyingu sem aðallega sé á ensku. Dröfn segir ljóst að ekki sé hægt að keppa við þá afþreyingu nema með því að hætta að markaðsvæða barnabækur. Þær séu nauðsynleg tæki til lesturs. Dröfn hefur lagt einstaklega mikinn metnað í að skapa notalegt og lestrarvænt umhverfi á bókasafninu. Í skugga PISA könnunarinnar hugsa margir foreldrar hvernig þeir geti stutt börnin sín betur við lesturinn. Dröfn bendir á að þetta geti verið ein leið en að það sé líka afar hvetjandi fyrir börnin og unglingana þegar foreldrarnir lesa sömu bækur og þau. „Það er alveg ótrúlega hvetjandi að eiga svona sameiginlega upplifun og geta rætt við barnið um bókina,“ segir Dröfn. Lesskilningur og menntamálin í víðara samhengi hafa verið í brennidepli í vikunni eftir að niðurstöður PISA könnunarinnar lágu fyrir. Fréttastofa fékk í vikunni til sín í Pallborðið sérfræðinga úr menntakerfinu og nokkra fyrrverandi menntamálaráðherra til að rýna þessa stöðu. Hægt er að horfa á þáttinn í heild hér.
Bókaútgáfa Skóla - og menntamál Börn og uppeldi PISA-könnun Tengdar fréttir PISA könnun og menntamálin í Pallborðinu Í Pallborðinu á Vísi í dag verður PISA könnunin og menntamálin í forgrunni. Þátturinn hefst klukkan 14.00 og verður í beinni útsendingu á Vísi og í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi. 7. desember 2023 13:32 Varar við því að hoppa á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum Full ástæða er til að hafa áhyggjur af stöðu menntamála í ljósi nýbirtrar PISA könnunar. Þetta segir Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ sem varar við því að hoppa á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum. 6. desember 2023 19:33 „Ótrúlegt að menn horfist ekki í augu við þetta og axli ábyrgð“ „Það molnar stanslaust undan okkur. Hversu miklum lífsgæðum þurfum við að fórna og hversu mörgum tækifærum nemenda okkar þurfum við að fórna þar til við grípum í taumana og vöknum?“ 6. desember 2023 15:27 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira
PISA könnun og menntamálin í Pallborðinu Í Pallborðinu á Vísi í dag verður PISA könnunin og menntamálin í forgrunni. Þátturinn hefst klukkan 14.00 og verður í beinni útsendingu á Vísi og í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi. 7. desember 2023 13:32
Varar við því að hoppa á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum Full ástæða er til að hafa áhyggjur af stöðu menntamála í ljósi nýbirtrar PISA könnunar. Þetta segir Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ sem varar við því að hoppa á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum. 6. desember 2023 19:33
„Ótrúlegt að menn horfist ekki í augu við þetta og axli ábyrgð“ „Það molnar stanslaust undan okkur. Hversu miklum lífsgæðum þurfum við að fórna og hversu mörgum tækifærum nemenda okkar þurfum við að fórna þar til við grípum í taumana og vöknum?“ 6. desember 2023 15:27