Innlent

Tvö­falt fleiri full­trúar Ís­lands á COP28

Lovísa Arnardóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Þóra Arnórsdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar og Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur eru meðal þeirra sem sækja ráðstefnuna.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Þóra Arnórsdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar og Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur eru meðal þeirra sem sækja ráðstefnuna. Vísir

Alls eru 84 þátttakendur frá Íslandi skráðir aðildaríkjafund Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna sem hófst í dag í Dúbaí og lýkur þann 12 .desember eða taka þátt í hliðarviðburðum tengdum loftslagsráðstefnunni. Fulltrúum Íslands fjölgar verulega milli ára.

Í hópnum eru auk áðurnefndra fulltrúa, þingmenn og fulltrúar Reykjavíkurborgar, félagasamtaka á borð við Unga umhverfissinna og Landvernd, og 18 fyrirtækja á sviði endurnýjanlegrar orku, kolefnisföngunar og –geymslu og önnur fyrirtæki á sviði grænna lausna.

Þeim hefur fjölgað um nærri hundrað prósent frá því í fyrra þegar 44 Íslendingar fóru til Egyptalands.

Tveir ráðherrar fara úr ríkisstjórninni, það eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem tekur þátt í leiðtogafundi sem haldinn verður í upphafi ráðstefnunnar. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tekur þátt í fundum og hliðarviðburðum á ráðstefnunni, auk tvíhliðafunda með ríkjum og alþjóðastofnunum.

Umhverfis-, orku- og loftslagráðuneytið greiðir kostnað vegna þátttöku fulltrúa ráðuneytisins í sendinefndinni, auk þess að styrkja fulltrúa ungmenna til þátttöku á fundinum. Er þetta í þriðja sinn sem fulltrúi ungmenna er í hinni opinberu sendinefnd.

Alls eru tólf í opinberri sendinefnd Íslands á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Af þeim eru sex fulltrúar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, tveir fulltrúar frá utanríkisráðuneytinu og tveir fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, einn fulltrúi frá fjármálaráðuneytinu og tveir fulltrúar frá Umhverfisstofnun, auk þess sem í sendinefndinni er fulltrúi frá Landssamtökum ungmennafélaga.

Alls sækja fimm fulltrúar fundina alla dagana, en stærstur hluti sendinefndarinnar tekur aðeins þátt í hluta fundarins. Einnig sækja fundinn sérfræðingar frá undirstofnunum umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins sem vinna að loftslagsmálum með ýmsum hætt, þ.e. frá Orkustofnun og Veðurstofu Íslands.

Opið er fyrir skráningu á COP28 meðan fundurinn stendur yfir. Fjöldi fulltrúa íslenskra stjórnvalda gæti því mögulega tekið einhverjum breytingum.

Að neðan má sjá þá sem eru skráðir á COP27 frá Íslandi (upplýsingarnar eru fengnar frá umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðuneytinu):


  1. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
  2. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  3. Helga Barðadóttir, formaður íslensku sendinefndarinnar, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðuneyti
  4. Halla Sigrún Sigurðardóttir, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðuneyti
  5. Magnús Agnesar- Sigurðsson, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðuneyti
  6. Tómas Brynjólfsson, fjármála- og efnahagsráðuneyti
  7. Rafn Helgason, Umhverfisstofnun
  8. Vanda Úlfrún Liv Hellsing, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðuneyti
  9. Benedikt Höskuldsson, utanríkisráðuneyti
  10. Nicole Keller, Umhverfisstofnun
  11. Unnur Kristinsdóttir, fulltrúi ungmenna
  12. Elín Rósa Sigurðardóttir, utanríkisráðuneyti
  13. Auðbjörg Halldórsdóttir, forsætisráðuneytið
  14. Henný Hinz, forsætisráðuneytið
  15. Brynhildur Davidsdottir Icelandic Climate Council Party delegate
  16. Sigurður Ingi Friðleifsson Orkustofnun, Orkustofnun
  17. Jón Asgeir Haukdal Orkustofnun, Orkustofnun
  18. Steinar Ingi Kolbeins umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðuneyti
  19. Halla Hrund Logadóttir Orkustofnun
  20. Theódóra Matthíasdóttir Veðurstofan
  21. Anna Hulda Olafsdottir Veðurstofan
  22. Arna Bang Alþingi
  23. Halldóra Mogensen Alþingi
  24. Jódís Skúladóttir Alþingi
  25. Thórunn SveinbjarnardóttirAlþingi
  26. Ingibjörg Svala Jónsdóttir Háskóli Íslands
  27. Dagur Bergþóruson Eggertsson borgarstjórn
  28. Diljá Ragnarsdottir borgarstjórn
  29. Viktoria Alfredsdottir Green by Iceland
  30. Edda Sif Pind Aradóttir Carbfix
  31. Kristín Linda Arnadóttir Landsvirkjun
  32. Ariel Johann Arnason Surefni Súrefni kolefnisjöfnun ehf.
  33. Carl Arnold Surefni Certified Credits (SCC) 
  34. Þóra Arnórsdóttir Landsvirkjun
  35. Jóhanna Hlín Auðunsdóttir Landsvirkjun
  36. Nótt Thorberg Bergsdóttir Green by Iceland Party
  37. Magnus Gunnar Erlendsson KPMG 
  38. Adrianna Gajdel-Pautasso Landsvirkjun
  39. Hera Grimsdottir Orkuveita Reykjavíkur
  40. Björn Þór Guðmundsson GEORG 
  41. Olafur Teitur Guðnason Carbfix 
  42. Haraldur Hallgrímsson Landsvirkjun 
  43. Jónas Hlynur Hallgrímsson Landsvirkjun
  44. Arni Hrannar Haraldsson On Power 
  45. Haukur Harðarson Arctic Green Energy 
  46. Davíð Helgason Transition VC 
  47. Björn Halldór Helgason International Carbon Registry 
  48. Kolbeinn Hilmarsson Svarmi Party
  49. Kristinn Hrobjartsson Running Tide
  50. Hjalti Páll Ingólfsson GEORG - Geothermal Research Cluster Party
  51. Guðbjörg Rist Jónsdóttir Atmonia 
  52. Sigurður Atli Jónsson Arctic Green Energy 
  53. Daniel Jonsson International Carbon Registry
  54. Kristjana Maria Kristjansdottir Carbon Recycling International 
  55. Björk Kristjánsdóttir CRI 
  56. Breki Logason Orkuveita Reykjavíkur
  57. Hordis Magnusdottir Iceland Travel 
  58. Snjólaug Ólafsdóttir Svarmi
  59. Kjartan Ólafsson Transition Labs ehf. 
  60. Gudmundur Ólason Arctic Green Energy
  61. Margrét Ormslev Asgeirsdottir Transition Labs
  62. Björgvin Pétursson Yggdrasill Carbon
  63. Crystel Riedemann VAXA Technologies Iceland 
  64. Rikardur Rikardsson Landsvirkjun
  65. Bradley Rochlin Running Tide
  66. Guðmundur Sigurbergsson International Carbon Registry
  67. Einar Orn Sigurdorsson Advania
  68. Rakel Sigurjónsdóttir Rafal ehf.
  69. Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir Carbfix
  70. Gudfinnur Sveinsson Brineworks 
  71. Ingibjörg Lilja Thórmundsdóttir Rafal ehf 
  72. Sævar Freyr Thráinsson Orkuveita Reykjavíkur
  73. Olafur Páll Torfason International Carbon Registry
  74. Finnur Ricart Andrason Ungir umhverfissinnar
  75. Cody Alexander Skahan Ungir umhverfissinnar
  76. Margarita Hamatsu Adventure for Students Iceland
  77. Árni Finnsson Náttúruverndarsamtök Íslands
  78. Gudmundur Steingrimsson Landvernd 
  79. Ásdís Olafsdóttir Arctic Circle
  80. Matthildur María Rafnsdóttir Arctic Circle
  81. Anna Sigurveig Ragnarsdóttir European University Institute
  82. Laurent Delporte NATO Party
  83. Anita Sharma Sustainable Energy for ALL 
  84. Heïdi Muguette Christiane Sevestre Arctic Monitoring and Assessment Programme

Tengdar fréttir

Van­­traust í upp­­hafi COP 28 lofts­lags­ráð­stefnunnar

Formaður náttúruverndarsamtaka Íslands segir loftslagsráðstefnuna COP 28 ekki fara vel af stað en gestgjafinn hefur verið sakaður um að draga taum olíuiðnaðarins. Þrenn umhverfisverndarsamtök hafa birt kröfulista í tengslum við ráðstefnuna sem hefst í dag.

Segist vongóður um „fordæmalausa niðurstöðu“ Cop28

„Fordæmalaus niðurstaða“ sem myndi halda lífi í voninni um að takmarka hlýnun jarðar við 1,5 gráður er innan seilingar, segir maðurinn sem fer fyrir samningaviðræðum um aðgerðir í loftslagsmálum fyrir loftslagsráðstefnuna Cop28 sem hefst í Dubai í vikunni.

Krefja stjórnvöld um harðari aðgerðir í skugga Cop28

Loftslagsráðstefnan Cop28 hefst síðar í þessari viku í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Formaður Landverndar segir íslensk stjórnvöld þurfa að taka sig á til þess að uppfylla loftslagsmarkmið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×