Jólaskreytingar utandyra gefa lífinu lit Hreinir Garðar 14. nóvember 2023 12:01 Hreinir Garðar bjóða upp á fjölbreytta þjónustu tengda jólaskreytingum sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn fyrir húseigendur. Hreinir Garðar er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í viðhaldi og snyrtingu garða á stór-höfuðborgarsvæðinu.
Undanfarin ár hefur allsherjar þjónusta tengd jólaskreytingum notið sívaxandi vinsælda enda sparar hún mikinn tíma og fyrirhöfn hjá húseigendum segir Þorgrímur Haraldsson, skrúðgarðyrkjumeistari hjá Hreinum Görðum. „Við bjóðum upp á fjölbreytta þjónustu tengda jólaskreytingum en Hreinir garðar selur og setur upp jólaseríur, hvort sem það er í tré, þakkanta, grindverk, svalir o.s.frv. Einnig sinnum við niðurtekt á jólaljósum, geymum seríur fyrir viðskiptavini milli ára endurgjaldslaust og sinnum viðgerðum ef þarf.“ Í þeim tilfellum þar sem verið er að skreyta stærri tré er algengt að seríurnar séu áfram í trénu milli ára segir Þorgrímur. „Þá er þetta í raun og veru bara kostnaður við skreytinguna í upphafi og næstu ár í framhaldinu er nóg að stinga í samband þegar jólastemningin gerir vart við sig.“ Hreinir Garðar selja jólaseríur og skreytingar í samstarfi við Pfaff en það samstarf hófst fyrir mörgum árum. „Aðal vörulínan okkar kallast System 24 og eru það sem kallað er „warm-white“ seríur. Þær eyða litlu sem engu rafmagni, endast mjög vel og eru virkilega fallegar seríur sem henta vel í skreytingar í trjám og þakköntum. Um er að ræða samtengjanlegar einingar, svo það er auðvelt að bæta við seríum og einfalt að gera við ef íslenska veðrinu tekst að slíta seríurnar. Fyrir einkaaðila eru þessar seríur nánast einráðar, þær eru bara það hentugar í þetta að aðrar lausnir þarf sjaldnast.“ Auk þess bjóða Hreinir Garðar upp á margs konar jólaskreytingar fyrir bæjarfélög og fyrirtæki þar sem oft á tíðum er notast við sér smíðaðar lausnir. Ólíkar lausnir í boði Þegar kemur að jólaskreytingum utandyra skiptir í raun mestu máli að finna þá lausn sem hentar hverjum og einum garði best segir Þorgrímur. „Það þarf ekki endilega að skreyta stærsta tréð í garðinum til að komast í jólafíling. Oft er hægt að skreyta minni runna eða tré, þakkanta, skjólveggi o.s.frv. fyrir aðeins brot af þeim kostnaði sem færi í að skreyta þokkalega stórt tré og fá samt smekklega og flotta skreytingu.“ Ef um tré er að ræða skiptir seríufjöldinn auðvitað miklu máli. „Yfirleitt þarf þó nokkuð fleiri seríur í eitt tré en fólk gerir sér grein fyrir. Það er ekki óalgengt að við séum að setja 15-30 seríur í stök tré. Stundum meira, sjaldan minna. Síðan er það lykilatriði við uppsetninguna að reyna að tryggja að ljósin dreifist í þokkalegu jafnvægi um tréð og að draga fram lögun trésins með ljósum eins og hægt er.“ Frá því Hreinir Garðar hófu að bjóða upp á þjónusta tengd jólaskreytingum hefur fyrirtækið boðið upp á ókeypis tilboð í jólaskreytingar. „Viðskiptavinir geta þannig haft samband við okkur og beðið um tilboð út frá þeirra hugmyndum eða fengið tillögur frá okkur um hvað væri heppilegast að skreyta. Við sendum þá mann á staðinn sem skoðar aðstæður, ráðleggur viðskiptavini og metur hve mikið af seríum þarf í skreytingarnar og gefur svo tilboð í verkið. Í því felst engin skuldbinding fyrir viðskiptavininn.“ Nánari upplýsingar á hreinirgardar.is.
Jól Jólaskraut Garðyrkja Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið Fleiri fréttir Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Sjá meira