Heimkaup safnar 1,5 milljarði í hlutafé til að opna nýjar verslanir
![Gréta María Grétardóttir, forstjóri Heimkaupa, var framkvæmdastjóri Krónunnar á árunum 2018-2020 og fjármálastjóri Festis, móðurfélags Krónunnar, tveimur árum fyrr. Hún var áður forstjóri Arctic Adventures.](https://www.visir.is/i/8A5E8A45C790E02430EF8DC8F55B58474F6A088EEA60D156B60458B332A601AD_713x0.jpg)
Stjórnendur Heimkaupa vinna nú að gerð kynningarefnis til að safna allt að 1,5 milljörðum króna í hlutafjáraukningu til að fjármagna opnun nýrra matvöruverslana. „Við ætlum að koma með látum inn á markaðinn,“ segir forstjóri Heimkaupa, í samtali við Innherja. Allt hlutafé í Brauð & co. var metið á tæplega milljarð króna þegar Heimkaup keypti hlut Skeljar fjárfestingarfélags í bakaríinu í sumar í skiptum fyrir eigin bréf.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/2C5E842E0C4C713AA30442AC916370880176DE63E1638CE432B1CBEA03BA3360_308x200.jpg)
SKEL ætlar að „þyngja vægi“ skráðra félaga og fasteigna í eignasafninu
Fjárfestingafélagið SKEL, sem hagnaðist um rúmlega tvo milljarða á fyrri árshelmingi miðað við nærri fimm milljarða á síðasta ári, ætlar á næstu misserum að auka vægi sitt í skráðum eignum og fasteignum. Forstjóri SKEL segir að félagið muni nýta að „stórum hluta“ þá fjármuni sem fengust við sölu á eftirstandandi hlut í Orkufélaginu í Færeyjum í fjárfestingar í Norður-Evrópu.
![](https://www.visir.is/i/8A5E8A45C790E02430EF8DC8F55B58474F6A088EEA60D156B60458B332A601AD_308x200.jpg)
Tekjur móðurfélags Heimkaupa drógust saman um fjórðung
Tekjur Wedo, móðurfélags Heimkaupa, Hópkaupa og Bland.is, drógust saman um 26 prósent á milli ára og námu 2,3 milljörðum króna árið 2022. Minni sölu má rekja til þess að neytendur keyptu í auknum mæli í hefðbundum verslunum eftir faraldurinn, segir stjórn félagsins.
![](https://www.visir.is/i/712E20C03F2D22F6FFC69BFCE8A9DCA9BDFFB82208E5CCD8799127F7F16F223B_308x200.jpg)
Selja allan fimmtungshlut sinn í fjárfestingafélaginu Streng
Félög sem er stýrt af fjárfestunum Jóni Ásgeir Jóhannessyni og Sigurði Bollasyni hafa stækkað óbeinan eignarhlut sinn í SKEL fjárfestingafélagi eftir að hafa keypt samanlagt tuttugu prósenta hlut í Strengi. Seljendur bréfanna eru viðskiptafélagarnir Þórarinn Arnar Ævarsson og Gunnar Sverrir Harðarson en þeir fá meðal annars afhend bréf í Kaldalón í viðskiptunum og eru nú orðnir einir stærstu hluthafar fasteignafélagsins.
![](https://www.visir.is/i/07B85D0CDB68204FAFB5FEA93723668A7723E701B8038C4DBD010802FDC0C65F_308x200.jpg)
Gréta María ráðin forstjóri Arctic Adventures
Gréta María Grétarsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Arctic Adventures samkvæmt heimildum Innherja. Hún kemur í stað Styrmis Þórs Bragasonar sem lætur af störfum en hann hefur starfað sem forstjóri ferðaþjónustufyrirtæksins frá miðju ári 2019.