Innlent

Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga

Árni Sæberg skrifar
Heimsþingið er haldið í Hörpu.
Heimsþingið er haldið í Hörpu. Stöð 2/Sigurjón

Heimsþing kvenleiðtoga hefst í dag í Hörpu og taka yfir fimm hundruð kvenleiðtogar frá áttatíu löndum þátt í ár. Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavik Global Forum - Women Leaders, er nú haldið í sjötta sinn í samstarfi Women Political Leaders (WPL), ríkisstjórn Íslands, Alþingi og með stuðningi fjölmargra íslenskra og alþjóðlegra samstarfsaðila. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er sérstakur verndari Heimsþings kvenleiðtoga.

Dagskrá heimsþingins má finna hér. Þá má sjá beina útsendingu frá þinginu í streyminu hér að neðan:

Yfirskrift heimsþingins í ár er Power, Together for Leadership sem vísar til mikilvægis forystu og fjölda kvenna í leiðtogahlutverkum. Á heimsþinginu í ár verður kynnt átaksverkefnið, Reykjavik Action Items, sem felst í samstöðu um fjórar aðgerðir til að efla jafnrétti í heiminum. Í fyrsta lagi að ná launajafnrétti, í öðru lagi að jafna hlut kynjanna við ákvarðanatöku, í þriðja lagi að jafna fæðingarorlof foreldra og í fjórða lagi að innleiða aðgerðir til að binda enda á kynbundið ofbeldi.

Kvenleiðtogar koma víða að

Væntanlegar eru til landsins kvenleiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum, fjölmiðlum, vísindum og alþjóðastofnunum og er tilgangurinn að gefa þátttakendum tækifæri til að ræða og skiptast á hugmyndum um hvernig kvenleiðtogar geti beitt sér fyrir betra samfélagi, auknu jafnrétti milli kynja og valdeflingu kvenna í sem víðustu samhengi.

Meðal þátttakenda á Heimsþingi kvenleiðtoga eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands, Ashley Judd leikkona, Dr. Geeta Rao Gupta sendiherra jafnréttismála frá Bandaríkjunum, Irene Fellin fulltrúi NATO fyrir konur, frið og öryggi, Lopa Banerjee framkvæmdastjóri hjá UN Women, Martin Chungong framkvæmdastjóri Alþjóðaþingmannasambandsins, Nancy Tembo utanríkisráðherra Malawi, Julia Farrugia Portelli félagsmálaráðherra Möltu, Monica Mutsvangwa upplýsingamálaráðherra Zimbabwe, Dalia Grybauskaite fyrrverandi forseti Litháen, Tarja Halonen fyrrverandi forseti Finnlands, Marie-Louise Coleiro Preca fyrrverandi forseti Möltu, Simonetta Sommaruga fyrrverandi forseti Swiss, Iris Mwanza aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Bill and Melinda Gates Foundation, Adela Raz fyrrverandi sendiherra Afganistan í Bandaríkjunum, Mitali Wroczynski varaforseti hjá Co-Impact, Nanna-Louise Wildfang Linde varaforseti hjá Microsoft, ásamt yfir 150 þingkonum alls staðar að úr heiminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×