Nauðgaði vinkonu sinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. nóvember 2023 16:51 Konan og karlmaðurinn skemmtu sér saman umrædda nótt, meðal annars í miðbæ Reykjavíkur. Konan óskaði eftir aðstoð lögreglu um morguninn. Þá var hún komin út af heimili mannsins. Hún fór beint á neyðarmóttöku Landspítalans þar sem sýni voru tekin. Vísir/KTD Márcio José Caetano Vieira var í Landsrétti í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga kunningjakonu sinni fyrir fjórum árum. Landsréttur þyngdi dóminn um sex mánuði. Hann þarf að greiða konunni 1,8 milljónir króna í miskabætur. Márcio breytti framburði sínum verulega fyrir dómi og þótti ótrúverðugur í frásögn sinni.
Márcio var ákærður fyrir að hafa aðfaranótt 26. janúar 2019 nauðgað konunni á heimili sínu. Hann hefði með ofbeldi og ólögmætri nauðung haft samræði og önnur kynferðismök við konuna án hennar samþykkis. Hann hefði sest á bringu hennar, haldið fastri og þvingað hana til munnmaka. Eftir að konan náði að standa upp hefði hann ýtt henni á rúmið, girt niður um hana, stungið fingri í leggöng hennar og haft við hana samræði. Hlustaði ekki á hana Márcio og konan höfðu verið að skemmta sér um nóttina og endað heima hjá honum þar sem hann bjó í herbergi í iðnaðarhúsnæði. Þar hefðu þau reykt gras og hlustað á tónlist. Var hún um klukkutíma inni hjá honum en þau greindi verulega á hvað gerðist í framhaldinu. Konan sagði hann hafa leitað á sig, klætt úr, sest klofvega ofan á bringu hennar og neytt til munnmaka. Síðan hefði hann ýtt henni á rúmið, stungið fingri í leggöng og haft við hana samræði um leggöng að aftanverðu. Hún hefði „dottið út“ eða frosið. Márcio hefði ekki beitt neinu ofbeldi en ekki hlustað á hana þegar hún bað hann um að hætta. Þannig hefði hann náð fram vilja sínum. Hann sagði konuna hafa reynt við sig í leigubíl á leið heim til hans. Hún hefði veitt honum munnmök að eigin frumkvæði liggjandi á bakinu og svo snúið sér við og hann farið ofan á hana. Um það leyti hafi sími konunnar hringt og hún farið að gráta og farið. Hann neitaði fyrir dómi að hafa haft samræði við konuna og ekki fengið sáðlát. Leigubílstjóri kannaðist ekki við daður í leigubíl Héraðsdómur dæmdi Márcio í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Mat dómurinn framburð Márcio hvorki stöðugan né skýran um þau atriði sem máli skiptu. Þannig lýsti hann upphaflega hjá lögreglu að þau hefðu haft samræði um leggöng með samþykki konunnar og kynmökin endað með fullnægingu. Þau hefðu látið vel hvort að öðru, stundað kynmök í tveimur stellingum. Kynmökin hefðu staðið yfir í um tíu mínútur. Fyrir dómi kannaðist hann ekki við að hafa haft samræði við konuna. Þau hefðu reynt en ekki tekist því honum hefði ekki staðið og þá hefði verið vandamál að konan var á blæðingum. Þá kannaðist hann ekki við það fyrir dómi að hafa fengið sáðlát. Útskýringar hans að túlkur hans hjá lögreglu væri valdur að misskilningnum héldu ekki vatni. Dómurinn spilaði upptökur frá þeirri skýrslutöku og komst að þeirri niðurstöðu að túlkunin hefði verið skýr. Auk þessa væri margt í framburði Márcio fyrir að margt í framburði hans samrýmdist ekki því sem fram kæmi í gögnum málsins. Það kastaði rýrð á trúverðugleika frásagnar hans. Meðal annars lýsingar á kossum þeirra í leigubíl sem leigubílstjóri kannaðist ekki við. Þá þótti afar ótrúverðugt að konan hefði haft munnmök við hann í fimm til tíu mínútur, eins og hann lýsti, þrátt fyrir að honum hefði ekki staðið, eins og hann hélt sjálfu fram. Sæði fannst í dömubindi Vottorð sálfræðings og hjúkrunarfræðings styrktur frásögn konunnar sem hringdi á lögreglu um leið og hún yfirgaf heimili mannsins. Þá voru niðurstöður sæðisprófana tæknideildar lögreglunnar til þess fallnar að styrkja framburð konunnar um að Márcio hefði haft samræði um leggöng öfugt við það sem hann hélt fram. Ótvírætt var auk þess að sæði fannst í leggöngum konunnar og á dömubindi hennar. „Samkvæmt því og öðru framangreindu er það niðurstaða dómsins að ákærði hafi neytt brotaþola til munnmaka og samfara um leggöng án þess að afla samþykkis hennar og þrátt fyrir að hún hafi beðið hann að hætta og reynt að víkja sér undan. Ákærða hafi þannig mátt vera ljóst að brotaþoli var samförunum ekki samþykk og að þær væru gegn vilja hennar. Að mati dómsins breytir engu í þeim efnum þótt ekki hafi fundist áverkar á brotaþola, en þar er annars vegar hafður í huga framburður fyrrgreinds læknis, sem bar að blæðingar geti verkað sem sleipiefni og komið í veg fyrir áverka vegna samræðis, og hins vegar sú lýsing brotaþola að hún hafi upplifað sig vanmáttuga gagnvart aðstæðunum og frosið í stað þess að streitast á móti,“ sagði í niðurstöðu héraðsdóms. Ákæra gefin seint út Márcio áfrýjaði niðurstöðunni til Landsréttar sem þyngdi dóminn um hálft ár. Horfði Landsréttur einnig til þess að rannsókn málsins hefði verið lokið að mestu árið 2019 og svo bættust við tvær skýrslur af vitnum í desember 2020. Ákæra var þó ekki gefin út fyrr en í september 2021 og voru þá tvö og hálft ár liðin frá upphafi rannsóknar. Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til tafa á rannsókn og ákvörðun um saksókn. Þá var litið til þess að Márcio hefur ekki áður hlotið refsidóm.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Fleiri fréttir Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sjá meira