Allsvakalegt laxadráp á veiðisvæði Iðu Jakob Bjarnar skrifar 8. nóvember 2023 09:13 Finnur rekur Stóru Laxá. Í ósnum við á hans er Iða og þar drepa menn allt sem þeir koma höndum á, svo sem Katrín Tanja og hennar fólk. Finnur Harðarson, umsjónarmaður Stóru Laxár, á í stökustu vandræðum með veiðimennskuna eins og hún er stunduð á Iðu I og Iðu II. Þar ríkir villta vestrið, að hans sögn.
Veiðisvæðið Iða, kennt við samnefndan bæ á vinstri bakka Hvítár, nær frá ármótunum þar sem Stóra- og Litla Laxá sameinast Hvítá og niður að brúnni yfir ána. Þar gengur allur lax um sem leitar upp í Stóru Laxá, og víðar og því á Finnur nokkurra hagsmuna að gæta. Finnur leitaði nýverið til Landsambands veiðifélaga og spurði hvernig aflabrögðum þar væri háttað og svarið sem hann fékk er sláandi, í það minnsta í hugum þeirra sem hafa talað fyrir veiða og sleppa-aðferðinni. Þessar tölur fékk Finnur sendar frá Landsambandi veiðifélaga.skjáskot Það kemur sem sagt á daginn að laxadrápið í Iðu er allsvakalegt. Finnur metur það svo að um sé að ræða 95 prósenta dráp. „Ég hef ekkert á móti því að lax sé drepinn en það verður að gæta meðalhófs,“ segir hann í samtali við Vísi. Að sögn Gunnars Arnar Petersen framkvæmdastjóra Landsambands veiðifélaga er pottur brotinn í uppgefnum tölum. Samkvæmt svari frá Hafró hefur Iða I alltaf skilað veiðiskýrslu en öðru máli gegnir um Iðu II, sem er þrískipt: „Óli Pétur Friðþjófsson sem fer með 1/3 hefur alltaf skilað. Guðmundur Harðarson sem fer með 1/3 hefur oftast skilað en það vantar 2021 tölur frá honum. Systkinin Helgi, Helga og Úlfar, sem fara með 1/3, hafa aldrei skilað né svarað Hafró þegar gengið hefur verið eftir upplýsingum,“ segir í svari Gunnars Arnar til Finns. Hann segir jafnframt að það væri auðvitað hægt að áætla hvað vantar upp á að teknu tilliti til þeirra talna sem fyrir liggja. En auðvitað geti ástundun verið misjöfn. Allt drepið í Iðu Finnur segist ekki vita með fullri vissu hvernig eignarhaldi á Iðu er háttað, þetta séu 20 til 30 fjölskyldur sem eigi þetta, sem erfist og deilist í allar áttir. „Þarna voru allskonar eigendur í gamla daga með netarétt. En því var svo breytt í stangveiði og þeir eru með þrjár stangir á veiðistað sem er innan við kílómetra á lengd. Þetta eru svona fimm hundruð metrar. Til samanburðar er Stóra Laxá um 100 kílómetra löng, þar af 50 kílómetra fiskgeng,“ segir Finnur. „Og þarna er allt drepið.“ Það sem varð til þess að Finnur fór að skoða þetta nánar var að honum gramdist fréttaflutningur Moggans og Eggerts Skúlasonar af nýlegri veiðiferð crossfit-drottningarinnar Katrínar Tönju Davíðsdóttur sem landaði draumalaxinum í Hvítá við Iðu með sínum uppáhalds veiðifélaga, afa sínum Helga Ágústssyni fyrrverandi sendiherra. „Svo er þessu hampað í fjölmiðlum!“ Finnur hefur árum saman kallað eftir reglum en veiðiréttahafar hafa skellt skollaeyrum við því. Að endingu voru þó samþykktar samræmdar reglur, þær að fiskum yfir 70 sentímetrum yrði sleppt. „En þeir fara ekki einu sinni eftir eigin reglum,“ segir Finnur og bendir á tölurnar frá Landsambandinu, þeirra eigin tölum, því til staðfestingar. „Það er allt drepið. Menn eru með tvöfaldan spún, og maðk og Guð einn veit hvað ekki.“ Grátbrosleg barátta gegn veiðiböðulsskap Finnur segir baráttu sína fyrir aukinni fiskgengd grátbroslega. Þetta sé jú ósinn upp í Stóru Laxá. Menn hafa til að mynda verið að kaupa upp net í stórum stíl. „Neðar í kerfinu, í Hvítá. Við höfum verið að kaupa þetta upp og náð 60 prósentum. En það hefur verið erfitt. Beint fyrir neðan Iðu er svo bær sem heitir Fell. Bóndinn þar hefur alltaf verið með net, drepið hundrað laxa á ári. Eftir því sem við keyptum fleiri net þá var bara bingó hjá honum; kom miklu meira í netin. Og nú vill sá bóndi miklu meiri pening, af því að veiðin er betri hjá honum en nokkru sinni. Þetta er eins og að fá kynsjúkdóm, þú losnar ekkert við hann,“ segir Finnur öldungis steinhlessa á þeim hindrunum sem í vegi standa. Þannig er til að mynda með Iðu að um 1980 var hægt að tala um svonefndan Iðulax. Hins vegar kom hlaup í Hagavatn og skelfing greip um sig á öllu vatnasvæðinu, að sögn Finns. Nú er ekkert þar nema leir, sandur og drulla. Laxinn hrygnir ekki þar lengur, en hann þarf malarbotn til þess. „Laxinn hrygnir út um allt hjá mér en ekki þarna. Þar sem er bara fólk að veiða fisk sem það varla á?!“ segir Finnur. Hann vonast til að einhverjar samræmdar leikreglur verði settar og það fyrr en seinna.
Lax Stangveiði Ölfus Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Sjá meira