Lífið

28 syngjandi karlar í sama heita pottinum á Sel­fossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Kári Allansson, þriðjuvaktarstjóri Karlakórsins Esju eins og hann  kynnir sig sjálfur.
Kári Allansson, þriðjuvaktarstjóri Karlakórsins Esju eins og hann kynnir sig sjálfur. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það var engin ládeyða hjá félögum í Karlakórnum Esju úr Reykjavík um helgina því á sama tíma og þeir fögnuðu útkomu nýrrar plötu brugðu þeir sér í bæjarferð á Flúðir og fengu sér hrossakjöt þar, og enduðu ferðina svo með söng og Mullersæfingum í sundlauginni á Selfossi.

Félagarnir byrjuðu á því að stoppa við Litlu Kaffistofuna þar sem þeir héldu smá athöfn til að fagna nýrri plötu kórsins, sem er nú komin á Spotify. Lagið var tekið og mikil og góð stemming var á staðnum.

Eftir það hélt kórinn á Flúðir í heimsókn til Karlakórs Hreppamanna þar sem boðið var upp á hrossakjöt með öllu tilheyrandi. Á heimleiðinni á laugardaginn var komið við í sundlauginni á Selfossi og lagið tekið í heita pottinum og Mullersæfingar gerðar á bakkanum. Allt eins og það á að vera.

„Það er ægilega gaman hjá okkur, það hefur alltaf verið rosalega gaman hjá okkur fyrst og fremst. Út á það gengur þetta og það eru sérstök forréttindi að fá að tilheyra samfélagi karlakóra á Íslandi. Það er einhver besta íþrótt sem völ er á,” segir Kári Allansson, þriðjuvaktastjóri Karlakórsins Esju eins og hann kynnir sig sjálfur.

Félagar í Esju höfðu sérstaklega gaman af því að gera nokkrar Mullersæfingar á stéttinni hjá Sundhöll Selfoss.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En að vera í karlakór, hvað er það að gefa mönnum?

„Það er nú bara bræðralagið, bræðraþelið og einhvers staðar þurfa vondir að vera á þessum síðustu og verstu tímum þegar okkar kyn sætir miklum ákúrum frá betri helmingnum fyrir að standa okkur ekki nógu vel á þriðju vaktinni. Og það er svona sem við söfnum kröftum í bræðraþeli og komum til baka endurnærðir og glaðir og erum almennt til friðs á okkar heimilum,” bætir Kári við glottandi út í annað.

28 karlar í karlakórnum tóku lagið í heita pottinum í sundlauginni á Selfossi á laugardaginn á heimleið sinni í skemmtiferð um Árnessýslu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Facebooksíða karlakórsins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.