Fyrsta markið fyrir uppeldisfélagið tryggði sigur Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. nóvember 2023 21:43 Fabio Mirretti hafði skorað fyrir öll ungmennalið Juventus og komst svo loks á blað fyrir aðalliðið í dag.
Þrátt fyrir mikla yfirburði mátti Fiorentina þola 0-1 tap gegn Juventus á Artemio Franchi leikvanginum í 11. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Tvítugur leikmaður uppalinn hjá Juventus skoraði fyrsta mark sitt fyrir félagið og tryggði sigurinn. Fabio Miretti skoraði eina mark leiksins á 10. mínútu eftir fyrirgjöf frá Filip Kostic á vinstri vængnum. Þetta var fyrsta mark hans fyrir aðallið félagsins, miðjumaðurinn er aðeins tvítugur að aldri, hann er uppalinn hjá Juventus frá 8 ára aldri og hefur leikið og skorað fyrir öll ungmennalið félagsins. Fabio Miretti scored his FIRST goal for Juventus’ senior team 👏He joined the club in 2011 and scored at every level ⚪️⚫️✅ U17✅ U19✅ U23✅ First team Been scoring goals for Juve since he was 8 😏 pic.twitter.com/kAy3ST3Ein— Italian Football TV (@IFTVofficial) November 5, 2023 Fiorentina voru þó mun sterkari aðilinn allan leikinn, héldu boltanum rúmlega 70% af tímanum og áttu heilar 25 tilraunir að marki Juventus, aðeins fjórar þeirra rötuðu þó á markið. Dusan Vlahovic fékk að heyra mikið baul og rasísk orð í sinn garð frá stuðningsmönnum Fiorentina sem kölluðu hann sígauna þegar hann mætti til leiks. Hann sat á bekknum, kom svo inn á 68. mínútu fyrir Moise Kean en tókst ekki að komast á blað. Rispetto per le vittime, rispetto per le famiglie, però fare i cori razzisti a #Vlahovic va bene. #FiorentinaJuve pic.twitter.com/E0Z6wkweQp— Daniele De Felice (@DanieleBibo) November 5, 2023 Fiorentina gáfu allt sem þeir áttu í leit að jöfnunarmarkinu en varð ekki ánægjan úr erfiðinu í þetta sinn. Juventus styrkir stöðu sína í 2. sæti deildarinnar með þessum sigri og minnkar muninn að Inter í efsta sætinu niður í tvö stig.
Ítalski boltinn Tengdar fréttir Albert skoraði eina mark Genoa í tapi Albert Guðmundsson og félagar í Genoa fóru í heimsókn til Cagliari í Serie A í dag þar sem Albert skoraði eina mark gestanna. 5. nóvember 2023 16:13
Albert skoraði eina mark Genoa í tapi Albert Guðmundsson og félagar í Genoa fóru í heimsókn til Cagliari í Serie A í dag þar sem Albert skoraði eina mark gestanna. 5. nóvember 2023 16:13