Hersveitir Rússa hafa sótt nærri því tvo kílómetra fram á einum stað á víglínunni við Avdívka á undanförnum tveimur vikum. Á sama tíma hafa Rússa varið miklu púðri í árásir nærri Kúpíansk og Lyman annars staðar í austurhluta Úkraínu.
Washington Post hefur eftir Oleksander Syrsky, einum af yfirmönnum herafla Úkraínu, að ástandið í austurhluta Úkraínu hafi versnað töluvert og þá jafnvel mest við Kúpíansk.
Sjá einnig: Erfiður vetur í vændum hjá Úkraínumönnum
Kúpíansk féll í hendur Rússa snemma í innrás þeirra sem hófst í febrúar í fyrra en Úkraínumenn frelsuðu hana í skyndisókn þeirra í norðausturhluta Úkraínu síðasta haust. Síðan þá hefur borgin orðið fyrir stöðugum stórskotaliðsárásum Rússa.
Víglínan við borgina hefur þó hreyfst lítið.
Sagðir með fjögur hundruð þúsund hermenn í Úkraínu
Nú virðist sem Rússar hafi sent liðsauka á svæðið, skriðdreka og þyrlur og segja úkraínskir hermenn að árásir Rússa séu mun kröftugri en áður. Einn hermaður sagði WP að Rússar sæktu fram í bylgjum og notuðu til þess meðal annars fangasveitir.
Bandaríska hugveitan Institute for the study of war segir Rússa hafa náð takmörkuðum árangri nærri Kúpíansk.
Russian forces conducted offensive operations near #Kupyansk on October 23 and made a limited confirmed advance. Geolocated footage published on October 22 indicates that Russian forces marginally advanced southeast of Ivanivka (20km SE of Kupyansk). https://t.co/MCw01aoy4S https://t.co/R6rSTCZ97D pic.twitter.com/NgYJLZBJkn
— ISW (@TheStudyofWar) October 24, 2023
Einn yfirmanna úkraínsku leyniþjónustunnar GUR sagði í nýlegu viðtali að Rússar hefðu safnað um fjögur hundruð þúsund hermönnum í Úkraínu eftir herkvaðningu í sem staðið hefur yfir í marga mánuði. Rússar hafa þó ekki viljað fara í almenna herkvaðningu aftur.
Áðurnefndur yfirmaður sagði Rússa ætla að nota þennan herafla til að reyna að sækja fram á nokkrum vígstöðvum.
Gífurlegt mannfall við Avdívka
Rússar virðast þó leggja mesta áherslu á Avdívka, sem er í raun úthverfi Dónetsk-borgar og hefur verið lýst sem hliðinu að borginni, sem er höfuðborg samnefnds héraðs og hefur verið í höndum Rússa frá 2014. Þá innlimuðu þeir Krímskaga ólöglega og studdu aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu.
Bærinn hefur því verið í fremstu víglínu frá 2014 og er mjög víggirtur. Þess vegna eru Rússar að reyna að umkringja bæinn og þvinga úkraínska hermenn þar til að gefast upp.
Sjá einnig: Reyna að umkringja úkraínska hermenn
Frá því sókn Rússa að Avdívka hófst sýnir myndefni að Rússar hafi orðið fyrir miklu mannfalli og misst fjölmarga skrið- og bryndreka. Tölur eru nokkuð á reiki en einn hópur segir gervihnattamyndir benda til þess að Rússar hafi misst minnst 109 skrið- og bryndreka við Avdívka á síðustu tveimur vikum.
Through visual analysis of satellite imagery, our team found Russian military vehicle losses in Avdiivka between October 10 and October 20. The total number exceeded 109, indicating a significant loss of approximately aligning to a brigade-sized force in just ten days. Thread: pic.twitter.com/rhZ6zhxIzm
— Tatarigami_UA (@Tatarigami_UA) October 23, 2023
Rússar hafa þó sótt fram og eru sagðir hafa náð í um fimm kílómetra fjarlægð frá Avdívka. Þar munu þeir hafa sótt fram á ruslahaug og sett upp rússneska fánann. Úkraínumenn segja Rússa þó ekki hafa getað komið sér fyrir á haugunum, vegna stórskotaliðsárása þeirra.
Mjög harðir bardagar eru sagðir geysa á svæðinu.
"Meat assaults" by Russian troops: despite numerous losses, Russian troops continue to actively attack Avdiivka. Some of the fiercest fighting is taking place here along the entire front line.
— Anton Gerashchenko (@Gerashchenko_en) October 24, 2023
: DW pic.twitter.com/VxAXu8xZBi
Sókn Rússa hefur einnig kostað Úkraínumenn töluvert. Úkraínski kvikmyndagerðarmaðurinn Oleg Sentsov og núverandi hermaður hefur tekið þátt í vörnum Úkraínumanna við Avdívka en hann birti á dögunum færslu á Facebook þar sem hann sagði frá miklum bardögum.
Hann sagði rússneska hermenn hafa sótt fram í bylgjum og á bryndrekum. Hann segir úkraínskt stórskotalið og dróna hafa leikið Rússana grátt en Rússarnir hafi þrengt mjög að verjendunum. Þeir hafi grýtt handsprengjum sín á milli og skipst á skotum.
Sentsov segir að svo hafi hann séð sex rússneskum skriðdrekum ekið beint í áttina að þeim.
Russian forces conducted offensive operations near #Avdiivka and made confirmed advances northeast of Avdiivka. Geolocated footage published on October 23 indicates that Russian forces advanced southwest of Krasnohorivka (5km northeast of Avdiivka). https://t.co/MCw01aoy4S https://t.co/R6rSTCZ97D pic.twitter.com/2juB1U53Tr
— ISW (@TheStudyofWar) October 24, 2023
„Myndi ég segja að ég hefði orðið hræddur? Ekki beint. Ég man bara greinilega eftir því að hafa áttað mig á því að dauðinn væri nærri,“ skrifaði Sentsov samkvæmt þýðingu. Hann sagðist hafa skipað mönnum sínum í skjól og vonast eftir því að áhafnir skriðdrekanna myndu ekki sjá þá.
Skriðdrekunum var ekið framhjá þeim en hermenn stukku af skriðdrekunum og kom til skotbardaga milli úkraínsku hermannanna og þeirra rússnesku. Sentsov segir áhafnir skriðdrekanna ekki hafa tekið eftir þeim og að svo hafi virst að rússnesku hermennirnir hafi ekki getað átt samskipti við áhafnirnar.
Að endingu hafi skriðdrekunum verið ekið til baka. Í kjölfarið var Setnsov sagt að hörfa með sína menn.
„Við urðum heppnir. Við vorum oft heppnir þennan dag,“ sagði hann. Hann segir hermenn á M2 Bradley bryndrekum frá Bandaríkjunum hafa skýlt þeim á undanhaldinu en einhverjir menn undir hans stjórn hafi ekki skilað sér.
Oleg Sentsov, the acclaimed Ukrainian filmmaker and former Kremlin political prisoner, is now a soldier in the Ukrainian Army. He recently miraculously survived but was wounded in the Avdiivka direction. Here is his account.
— Euromaidan Press (@EuromaidanPress) October 22, 2023
"The roar of their armor emboldened the enemy, so pic.twitter.com/Wb7HjEs090