Lausa skrúfan og Wildheart hlutu hæstu styrkina Lovísa Arnardóttir skrifar 18. október 2023 15:16 Mynd tekin við afhendingu viðurkenningarskjala vegna úthlutunar í dag. Mynd/Mummi Lú Verkefnið Lausa skrúfan á vegum Grófarinnar geðræktar og nýsköpunarverkefnið Wildheart á vegum Hrafntinnu Sverrisdóttur hlutu hæstu styrkina í þriðju úthlutun Styrktarsjóðs geðheilbrigðis í dag.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðismálum með því að veita styrki til verkefna sem geta bætt geðheilbrigði íbúa Íslands og/eða skilning þar á. Í tilkynningu frá Geðhjálp kemur fram að alls hafi borist 46 umsóknir til sjóðsins í ár samtals að upphæð 93,5 milljónir króna. Lausa skrúfan er vitundarvakning vegvísir fyrir fólk á Norðurlandi og er stefnt á að fara af stað með það í febrúar 2024. Verkefninu er ætlað er að bæta samfélagslega vitund um mikilvægi þess að hugsa vel um geðheilsuna, hlúa að henni sem forvörn og hjálpa fólki að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og í því samhengi að berjast gegn sínum innri fordómum ekki síður en ytri. Til vinstri er Sigríður Gísladóttir, formaður stjórnar Geðhjálpar, og fulltrúi Grófarinnar en verkefni á þeirra vegum, Lausa skrúfan, hlaut hæsta styrkinn í ár. Mynd/Mummi Lú Wildheart er kvikmynd sem á að stuðla að vitundarvakningu og aukinni umræðu um málefni tengd geðrænum vanda. Verkefnið snertir á stöðu heimilislausra í samfélaginu og flóknum fíknivanda og hvernig áhrifin eru á aðstandendur – börn og fullorðna. Myndin er persónuleg saga um áföll og heilun, hlaðin fallegum og hráum augnablikum, heiðarlegum samtölum, erfiðum spurningum og hugrakkri leit af ást. Til vinsti er Sigríður Gísladóttir, formaður stjórnar Geðhjálpar, ásamt Hrafntinnu Sverrisdóttur, til hægri. Mynd/Mummi Lú „Margar þessara umsókna þóttu til fyrirmyndar en sjóðurinn hafði yfir að ráða 16 milljónir króna til þessarar úthlutunar og því ljóst að ekki yrði hægt að styrkja mörg góð verkefni,“ segir í tilkynningunni. Geðhjálp lagði sjóðnum til 180 milljóna króna stofnframlag árið 2021 og hefur síðan þá lagt sjóðnum til 41 milljóna króna til sem notaðar hafa verið til úthlutana síðastliðin þrjú ár. Fimm manna fagráð, skipað þeim Svövu Arnardóttur, Hrannari Jónssyni, Páli Biering, Salbjörgu Bjarnadóttur og Helgu Sif Friðjónsdóttur, en hún var formaður fagráðsins, fór yfir umsóknirnar og lagði tillögur sínar í hendur stjórnar. Stjórn sjóðsins skipa þau: Sigríður Gísladóttir, formaður, Héðinn Unnsteinsson og Haraldur Flosi Tryggvason. Í ár var horft sérstaklega til nokkurra þátta þegar umsóknir voru metnar, það eru: valdefling notenda, valdefling aðstandenda, mannréttindi og jafnrétti og nýsköpun. Öll verkefnin sem hlutu styrk og lýsing á þeim: Grófin geðrækt: Lausa skrúfan Verkefnið er vitundarvakning og jafnframt vegvísir fyrir fólk á Norðurlandi og er stefnt á að fara af stað með það í febrúar 2024. Verkefninu er ætlað er að bæta samfélagslega vitund um mikilvægi þess að hugsa vel um geðheilsuna, hlúa að henni sem forvörn og hjálpa fólki að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og í því samhengi að berjast gegn sínum innri fordómum ekki síður en ytri. Styrkupphæð: 3.500.000 kr. Hrafntinna Sverrisdóttir: Wildheart WILDHEART er nýsköpunarverkefni í formi kvikmyndar sem stuðlar að vitundarvakningu og aukinni umræðu um málefni tengd geðrænum vanda. Verkefnið snertir á stöðu heimilislausra í samfélaginu og flóknum fíknivanda og hvernig áhrifin eru á aðstandendur – börn og fullorðna. Myndin er persónuleg saga um áföll og heilun, hlaðin fallegum og hráum augnablikum, heiðarlegum samtölum, erfiðum spurningum og hugrakkri leit af ást. Styrkupphæð: 2.000.000 kr. Framfarahugur: Hugræn velferð ungmenna á flótta Verkefnið snýr að því að halda áfallamiðað leiklistarnámskeið fyrir ungmenni þar sem þeim er mætt á einstaklingsbundinn hátt, skapa öruggt og verndandi umhverfi þar sem hægt er að vinna með áföll, efla sjálfstraust og trú á eigin getu í gegnum leiklist. Markhópurinn er ungmenni af erlendum uppruna á aldrinum 16 til 20 ára óháð búsetu en er sérstaklega miðað að ungmennum í viðkvæmri stöðu þ.m.t flóttabörn. Styrkupphæð: 1.890.000 kr. MetamorPhonics: Starfsnám MetamorPhonics á Íslandi MetamorPhonics eða Korda sinfónían er samfélagsmiðað fyrirtæki sem Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths, tónlistarkona stýrir. Hugmyndafræðin bak við hljómsveitina er að valdefla fólk í gegnum tónlist. Að þátttakendur hljómsveitarinnar upplifi sig sem meðlimi samfélagsins og á þau sé hlustað. Styrkupphæð: 1.650.000 kr Matthildur – skaðaminnkun: Lágþröskulda skaðaminnkandi heilbrigðisþjónusta í tónlistarlífinu Skaðaminnkandi heilbrigðisþjónustan á tónlistarhátíðum og viðburðum þar sem margir koma saman er sólarhringsþjónusta sem veitir hjúkrunarþjónustu, skaðaminnkandi ráðgjöf um vímuefnanotkun, yfirsetu, sálrænan stuðning og tilvísanir í úrræði innan heilbrigðis- og félagskerfis, fyrir gesti viðburðanna. Styrkupphæð: 1.500.000 kr. Harpa Einarsdóttir Waage: Angurværð, bók í ljóðrænu formi til sjálfsræktar Bók sem lýsir reynslu notenda á listrænan hátt. Bókin er myndskreytt með list höfundar og texta. Höfundur fer yfir það hvernig hún náði árangri að heila sársaukann úr líkamanum og náði fullum bata frá geðrænum áskorunum. Styrkupphæð: 1.150.000 kr. Hringrásarsetur Íslands: Reddingakaffi Reddingakaffi tengir sjálfbærni og þátttöku í samfélaginu á tímum loftslagskvíða sem margir upplifa. Verkefnið fagnar fjölbreytileikanum og aðlögun mismunandi hópa í samfélagið. Markmiðið er að ná saman ólíkum hópum á einn stað þar sem reynslu verður deilt, jafnfrétti og mannréttindi sett á oddinn. Styrkupphæð: 1.000.000 kr. Traustur Kjarni: Þróun jafningja í samfélaginu Verkefnið snýr að þjálfun yngri jafningja eftir hugmyndafræði Intentional peer support (IPS). Verkefni miðar að því að þjálfa jafningja fyrir Bergið en þangað leita ungmenni með geðrænar áskoranir. Styrkupphæð: 1.000.000 kr. Það er von: Stuðningshópur aðstandenda einstaklinga með tvígreiningu Markmið verkefnisins er að setja á laggirnar stuðningshóp fyrir aðstandendur einstaklinga með tvígreiningar (fíkn og aðrar geðraskanir). Með stofnun stuðningshópsins verður aðstandendum gefið verkfæri til þess að takast á við þann flókna veruleika sem aðstandendur einstaklinga með fíkn og aðrar geðrænar áskoranir þurfa að takast á við. Styrkupphæð: 500.000 kr. Ferðafélag Víðsýnar: Ferðalög félaga í Víðsýn. Stefna félagsins er að gefa fólki sem á við geðrænar og félagslegar hindranir að etja, tækifæri til að ferðast, efla sjálfstæði og sjálfsmynd með því að takast á við ögranir og stíga út fyrir þægindarammann. Styrkupphæð: 375.00 kr. Hringsjá: Heilsuefling Stefnt er að því að bæta við þverfaglegu endurhæfinguna innan Hringsjár áfanganum Heilsuefling. Áfanginn yrði allt í senn bóklegur, verklegur og vettvangsmiðaður. Markmið áfangans er að þátttakandi geti nýtt sér þá þekkingu sem hann aflar sér til að átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan. Styrkupphæð: 300.000 kr. Kristín Auðbjörnsdóttir: Lífið og líðan Lífið og líðan er samfélagsmiðill sem varð til í veikindaleyfi umsækjanda. Miðillinn er vitundarvakning um (oft ósýnilega) líðan og lífið án glansmyndar. Vettvangur fyrir fræðslu og umræður á jafningjagrundvelli í von um að auka skilning og minnka um leið fordóma. Stykrupphæð: 300.000 kr. Sveitarfélagið Hornafjörður: Gott bakland Dagdvöl fatlaðra haldi námskeið fyrir aðstandendur einstaklinga með geðvanda. Er markmiðið að bjóða upp á námskeið og eftirfylgd í kjölfarið. Aðstandendur geta verið hornsteinninn í bata einstaklinga með geðrænan vanda og mikilvægt að þeirra líðan og þeirra áskoranir sé veitt athygli. Styrkupphæð: 300.000 kr. Vinaskákfélagið: Geðveik skák Styrkurinn er veittur til að halda þrjú skákmót: Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson, Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið og Jólamótið á Kleppi. Styrkupphæð: 250.000 kr. Hjálmar Hrafn Sigurvaldason: Reiðmaðurinn á Kameldýrinu Verkefnið snýst að því að koma saman fjölbreyttu listafólki til að hanna plaköt sem hvert um sig verða einstök. Plakötin eru síðan prentuð í númeruðum eintökum og seld en hagnaður af sölunni fari í geðræktandi verkefni. Styrkupphæð: 200.000 kr.
Geðheilbrigði Tengdar fréttir Skammaðist sín fyrir mömmu sína og upplifði sig eina Sigríður Gísladóttir, formaður Geðhjálpar og framkvæmdastjóri Okkar heims, segist hafa skammast sín fyrir andleg veikindi móður sinnar þegar hún var lítil. Hún segir börn upplifa sig ein í slíkum aðstæðum þó rannsóknir sýni að fimmta hvert barn sé í slíkum aðstæðum. 11. október 2023 07:00 „Er allt í gulu á þínum vinnustað?“ Átakinu Gulur september var formlega ýtt úr vör í dag af heilbrigðisráðherra og landlækni en Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. 1. september 2023 15:37 Segir úrræðaleysið algert: „Enginn sem grípur þennan hóp“ Formaður Þroskahjálpar segir úrræðaleysi fólks með fjölþættan vanda of mikið og krefst aðgerða. Forstöðukona geðsviðs segir engum vísað frá en að þau mæti einnig úrræðaleysi og stundum dvelji fólk of lengi hjá þeim. 3. ágúst 2023 19:05 Of algengt að fólk með geðrænan vanda falli á milli kerfa Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir áríðandi að koma í veg fyrir að fólk með mikinn geðrænan vanda falli á milli kerfa. Hann segir mál ungrar konu með taugaþroskaröskun sem fjallað var um í kvöldfréttum í gær endurspegla vandann vel. 3. ágúst 2023 13:01 Segja konu sem lést á geðdeild hafa verið beitta ofbeldi Nýlegur sýknudómur yfir hjúkrunarfræðingi vegna dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans er dæmi um að fólk sé beitt ofbeldi á sjúkrahúsum og stofnunum, að sögn forsvarsmanna Geðhjálpar. Þeir gagnýna að enginn axli ábyrgð á andlátinu og því sem miður fer í heilbrigðiskerfinu. 30. júní 2023 11:25 Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík Innlent Kort af staðsetningu gossprungunnar Innlent Magnaðar myndir sýna Grindavíkurveg undir hrauni Innlent „Fólki er frekar misboðið“ Innlent Refsing Jaguars þyngd verulega Innlent Fleiri fréttir Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík „Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Glóðvolg könnun og hraun rennur enn á ný Gandri fær grænt ljós Magnaðar myndir sýna Grindavíkurveg undir hrauni Sjá meira
Skammaðist sín fyrir mömmu sína og upplifði sig eina Sigríður Gísladóttir, formaður Geðhjálpar og framkvæmdastjóri Okkar heims, segist hafa skammast sín fyrir andleg veikindi móður sinnar þegar hún var lítil. Hún segir börn upplifa sig ein í slíkum aðstæðum þó rannsóknir sýni að fimmta hvert barn sé í slíkum aðstæðum. 11. október 2023 07:00
„Er allt í gulu á þínum vinnustað?“ Átakinu Gulur september var formlega ýtt úr vör í dag af heilbrigðisráðherra og landlækni en Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. 1. september 2023 15:37
Segir úrræðaleysið algert: „Enginn sem grípur þennan hóp“ Formaður Þroskahjálpar segir úrræðaleysi fólks með fjölþættan vanda of mikið og krefst aðgerða. Forstöðukona geðsviðs segir engum vísað frá en að þau mæti einnig úrræðaleysi og stundum dvelji fólk of lengi hjá þeim. 3. ágúst 2023 19:05
Of algengt að fólk með geðrænan vanda falli á milli kerfa Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir áríðandi að koma í veg fyrir að fólk með mikinn geðrænan vanda falli á milli kerfa. Hann segir mál ungrar konu með taugaþroskaröskun sem fjallað var um í kvöldfréttum í gær endurspegla vandann vel. 3. ágúst 2023 13:01
Segja konu sem lést á geðdeild hafa verið beitta ofbeldi Nýlegur sýknudómur yfir hjúkrunarfræðingi vegna dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans er dæmi um að fólk sé beitt ofbeldi á sjúkrahúsum og stofnunum, að sögn forsvarsmanna Geðhjálpar. Þeir gagnýna að enginn axli ábyrgð á andlátinu og því sem miður fer í heilbrigðiskerfinu. 30. júní 2023 11:25