Karólína Lea skoraði og lagði upp í öruggum sigri Smári Jökull Jónsson skrifar 15. október 2023 18:31 Karólína Lea hefur verið frábær með Leverkusen á tímabilinu. Twitter@@femmesfootnews Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lét til sín taka í liði Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Sara Björk Gunnarsdóttir kom af bekknum hjá Juventus sem vann stórsigur á Ítalíu.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er á láni hjá Leverkusen frá Bayern Munchen en hún fékk fá tækifæri hjá þýska stórliðinu á síðustu leiktíð. Hún var í byrjunarliði Leverkusen gegn sterku liði Freiburg sem meðal annars náði jafntefli gegn Bayern Munchen í fyrstu umferðinni. Leverkusen vann hins vegar nokkuð þægilegan sigur í dag. Liðið var 2-0 yfir í hálfleik eftir mörk frá Nikola Karczewska á 32. mínútu og annað frá Kristin Kogel í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Karólína Lea átti stoðsendinguna í fyrra markinu og náði sér þar að auki í gult spjald skömmu síðar. Í síðari hálfleik bætti Leverkusen við þriðja markinu á 60. mínútu og þar var Karólína Lea sjálf að verki. Þetta er þriðja deildarmark Karólínu Leu á leiktíðinni og hún hefur nú skorað í þremur leikjum í röð í úrvalsdeildinni. Karólína Lea var tekin af velli á 72. mínútu en leiknum lauk með 3-0 sigri Leverkusen. Á Ítalíu vann Juventus öruggan 4-0 sigur á Sassuolo á heimavelli sínum í Tórínó. Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn af bekknum á 77. mínútu en Juventus er með fullt hús stiga í deildinni eftir fjórar umferðir og jafnt meisturum Roma á toppnum.
Þýski boltinn Mest lesið Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Gary sem stal jólunum Enski boltinn Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Enski boltinn Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Enski boltinn Ættingi Endricks skotinn til bana Fótbolti Spilaði reglulega við afa Littlers en mætir nú stráknum á HM Sport Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Enski boltinn Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Pílan hefst aftur eftir hlé Sport Fleiri fréttir Eftirmaður Amorims rekinn eftir átta leiki City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Sjá meira