Lífið

Dra­ke ætlar að taka sér frí

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Drake hefur verið einn duglegasti rapparinn í tónlistarbransanum undanfarin ár.
Drake hefur verið einn duglegasti rapparinn í tónlistarbransanum undanfarin ár. Marcelo Hernandez/Getty Images

Kanadíski rapparinn Dra­ke segist ætla að taka sér frí frá tón­listinni. Á­stæðan er af heilsu­fars­legum toga.

Þetta full­yrðir banda­ríski slúður­miðillinn TMZ.  Hinn marg­verð­launaði rappari gaf ný­verið út plötuna „For All the Dogs“ en hann segir að nú sé komið gott, í hið minnsta tíma­bundið.

„Ég þarf að ein­beita mér að heilsunni. Þetta hafa verið ó­trú­leg vand­ræði sem ég hef átt með magann,“ segir rapparinn í út­varps­þætti sínum Table for One. Hann fór ekki í nánari út­listingar á heilsunni.

„Ég ætla að læsa dyrunum að stúdíóinu í ein­hverja stund. Kannski ár eða eitt­hvað. Kannski að­eins lengur,“ segir rapparinn. Hann hefur verið iðinn við kolann síðustu þrettán ár og gefið út níu plötur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.