Valskonur áfram með fullt hús stiga og ÍBV vann í Breiðholti Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. október 2023 22:06 Thea Imani Sturludóttir var markahæst í liði Vals sem trónir á toppnum. Vísir/Vilhelm Íslandsmeistarar Vals eru áfram með fullt hús stiga í Olís deild kvenna í handbolta. Valskonur unnu öruggan tólf marka sigur á Stjörnunni í kvöld, lokatölur í Garðabæ 18-30. Þá vann ÍBV þriggja marka sigur á ÍR í Breiðholti, 27-30.
Leikur Stjörnunnar og Vals var aldrei spennandi en það var í raun strax ljóst hvort liðið myndi fara með sigur af hólmi. Valskonur leiddur frá upphafi til enda og unnu einkar öruggan tólf marka sigur, lokatölur 18-30. Í liði Stjörnunnar var Helena Rut Örvarsdóttir markahæst með fimm mörk á meðan Elísabet Millý Elíasardóttir varði sjö skot í markinu. Hjá Val skoraði Thea Imani Sturludóttir átta mörk og Lilja Ágústsdóttir sex. Í markinu vörðu Hafdís Renötudóttir og Sara Sif Helgadóttir samtals 11 skot. Valskonur eru með fullt hús stiga, 10 að loknum fimm leikjum. Stjarnan er á sama tíma með aðeins eitt stig. Leikur ÍR og ÍBV var ef til vill meira spennandi en búist var við. Á endanum höfðu Eyjakonur þó betur, lokatölur í Breiðholti 27-30. Ásdís Guðmundsdóttir skoraði sjö mörk í liði ÍBV. Birna Berg Haraldsdóttir, Elísa Elíasdóttir og Sunna Jónsdóttir skoruðu fimm mörk hver. Í markinu varði Marta Wawrzykowska 13 skot. Í liði ÍR Karen Tinna Demian markahæst með sjö mörk og Hanna Karen Ólafsdóttir skoraði sex. Í markinu vörðu Hildur Öder Einarsdóttir og Ísabella Schöbel Björnsdóttir samtals 12 skot. ÍBV er í 2. sæti deildarinnar með 8 stig á meðan ÍR er í 5. sæti með fjögur stig.
Handbolti Olís-deild kvenna Valur ÍBV ÍR Stjarnan Mest lesið Sögulegur samningur Víkinga Íslenski boltinn Missti næstum því fingur á móti Liverpool Fótbolti Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur Íslenski boltinn Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Fótbolti Mörkin í Meistaradeild: Sjáðu stóru liðin setja upp sýningu Fótbolti Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar Fótbolti Fresta ákvörðun um hugsanlegt bann á Trump Sport Deilan leyst og spilað í Boston Fótbolti Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Enski boltinn Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Fleiri fréttir Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Sjá meira