Lífið samstarf

Opna nýjan sal með full­komnum æfinga­búnaði fyrir SkillX hóp­tíma

Hreyfing
SkillX er fjölbreytt þjálfun (e. functional fitness) í svipuðum anda og CrossFit og Bootcamp, og hentar breiðum hópi þátttakenda.
SkillX er fjölbreytt þjálfun (e. functional fitness) í svipuðum anda og CrossFit og Bootcamp, og hentar breiðum hópi þátttakenda.

Hreyfing hefur opnað nýjan 200 fermetra æfingasal á annarri hæð í Álfheimum. Þar eru kenndir SkillX hóptímar en salurinn er búinn nýjasta og fullkomnasta æfingabúnaði frá Technogym.

„Við byrjuðum með SkillX hóptímana þegar við opnuðum nýja salinn í byrjun september. Tímarnir hafa fengið frábærar viðtökur en SkillX er fjölbreytt þjálfun (e. functional fitness) í svipuðum anda og CrossFit og Bootcamp, og hentar breiðum hópi þátttakenda,“ útskýrir Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar.

SkillX æfingarnar samanstanda af kraftlyftingum, ólympískum lyftingum og þol- og úthaldsæfingum ásamt liðleikaþjálfun. Byrjendur og lengra komnir geta auðveldlega verið saman í tíma en Viðar Önundarson, þjálfari skalar æfingarnar upp eða niður eftir getu og þörfum hvers og eins svo hámarksárangur náist.

„SkillX tímarnir henta öllum þeim sem eru tilbúin að taka vel á og hafa gaman í kraftmikilli þjálfun og vilja bæta styrk og form,“ segir Ágústa. „Við bjóðum fjölda tíma í hverri viku svo allir ættu að geta fundið tímasetningu við sitt hæfi. Tímarnir eru frábær viðbót við annars ótrúlega flotta og öfluga hóptímatöflu Hreyfingar, þið einfaldlega verðið að prófa,“ segir Ágústa.

SkillX tímarnir eru innifaldir í Bestu aðild og einnig er hægt að bæta SkillX við aðild sína

Hvað segja gestir Hreyfingar um SkillX?

„Metnaðarfullir tímar með góðum þjálfara, mikið lagt upp úr réttri tækni við að gera skemmtilegar æfingar. Ekki skemmir frábær aðstaða fyrir.“

„Þetta var akkúrat það sem vantaði, er ótrúlega ánægð með tímann“

„Ég er búin að fara í tvo kynningartíma, þetta eru frábærir tímar og Viðar geggjaður þjálfari“

„Mér finnst SkillX tímarnir frábærir og góð viðbót við annars frábæra aðstöðu í Hreyfingu. Mér finnst Viðar mjög góður kennari.“

„Ég er í skýjunum með SkillX - ég elska svona hraða tíma sem maður lyftir og fer á þoltæki, ég er búin að fara í nokkra tíma og dýrka hvað þeir eru fjölbreyttir! Ekki skemmir fyrir að þjálfarinn er mjög peppandi, fylgist vel með og leiðbeinir manni - það sem er svo allra mikilvægast er að hann spilar virkilega góða tónlist






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.