Hér má sjá myndir af íbúðinni sem tekin var í gegn:
Seville gardínurnar frá Casa Lisa taka vel utanum íbúðina og þessa stóru glugga. Veggfóður frá Sérefni er á anddyrinu sem er ofið í fallegru mynstri - veggfóðrið heitir Optique. Line veggfóðrið fær líka að vera með í bakinu á skápnunum í fataherberginu og stofuskápnum. Dover white marmarinn er algjört listaverk á eldhúsinu og passar vel við brass blöndunartækin.
Innréttingarnar njóta sín vel í dökkum lit á móti ljósa veggjalitnum sem er angora blanket og angora light frá Sérefni. Eldhústækin koma öll frá Eirvik og eru algjörlega að falla vel inní dökka litinn í innréttingunum. Veggfóðrið á baðinu færir náttúruna inn - það heitir Itaya frá Sérefni. Baðspeglarnir eru frá Íspan og aukahlutir frá Tekk. Gólefnin eru algjört listaverk - hvíttað Chevron parket frá Mood interiors.
Hér má sjá brot úr þættinum: