Lífið

Stórkostlegar breytingar á 200 fermetra íbúð í New York Loft-stíl

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Íbúðin var endurhönnuð árið 2016 á einkar smekklegan hátt.
Íbúðin var endurhönnuð árið 2016 á einkar smekklegan hátt. Fasteignaljósmyndun

Glæsileg endurgerð 220 fermetra hæð við Hverfisgötu í Reykjavík er til sölu. Aukin lofthæð, stórt alrými í svokölluðum New York Loft stíl einkennir þessa stórbrotnu eign.

Húsið var byggt árið 1933 og var endurgert árið 2016. Sólveig Andrea Jónsdóttir innanhúsarkitekt endurhannaði íbúðina með sínum glæsilega stíl. 

Fallegt stafaparket úr eik með fiskibeinamynstri flæðir á milli og gefur heildarmyndinni einstakan sjarma. Innréttingar og hurðir eru sérsmíðaðar í svörtum lit. Auk þess er sérsmíðaður glerveggur með stálramma sem skilur hjónaherbergi frá stofu. 

Eldhúsið er rúmgott búið stórri eyju með marmara, vönduðum eldhústækjum og góðu skápaplássi.  

Í íbúðinni er ein af elstu lyftum Reykjavíkur sem endurgerð hefur verið í upprunalegri mynd og hefur fulla virkni og vottun frá Vinnueftirliti ríkisins. 

Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis.

Á meðfylgjandi myndum má sjá íbúðina fyrir og eftir breytingar.

Stofurnar eru hlýlegar og smart.Fasteignaljósmyndun
Opið er á milli eldhúss, stofu og borðstofu.Fasteignaljósmyndun
Stór og góður tækjaskápur nær upp í loft.Fasteignaljósmyndun
Eldhúsið er stórt og rúmgott með marmaraplötu og niðurfelldum vaski.Fasteignaljósmyndun
Hjónaherbergið er inn af stofu, aðskilið með sérsmíðuðum glervegg.Fasteignaljósmyndun
Inn af hjónaherberginu er fataherbergi með miklu skápaplássi.Fasteignaljósmyndun
Hjónaherbergi er hlýlegt og rúmgott. Fasteignaljósmyndun
Tvö baðherbergi eru í eigninni með stórum sturtum þar sem flísalagt er í hólf og gólf.Fasteignaljósmyndun
Annað svefnherbergi íbúðarinnar er rúmgott með góðu skápaplássi.Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Baðhergin tvö eru með handklæðaofni og walk in sturtu.Fasteignaljósmyndun
Í íbúðinni er ein af elstu lyftum Reykjavíkur sem endurgerð hefur verið í upprunalegri mynd.Fasteignaljósmyndun

Eignin fyrir breytingar

Á myndunum hér að neðan má sjá eignina fyrir breytingar. Óhætt er að segja að endurbæturnar séu glæsilegar.

Þingholt fasteignasala.
Þingholt fasteignasala.
Þingholt fasteignasala.
Þingholt fasteignasala.
Þingholt fasteignasala.
Þingholt fasteignasala.
Þingholt fasteignasala.
Þingholt fasteignasala.
Húsið var byggt árið 1930.Þingholt fasteignasala.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.