Innlent

Hvetja til opinnar umræðu án fordóma

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stjórn Hinseginfélags FG sem stóð í síðustu viku fyrir Super-Smash-Bros-móti.
Stjórn Hinseginfélags FG sem stóð í síðustu viku fyrir Super-Smash-Bros-móti. Hinseginfélag FG

Hinseginfélag FG vill í ljósi umræðunnar um bloggskrif Páls Vilhjálmssonar árétta að það að vera hinsegin, trans eða eitthvað annað fellur undir sjálfsögð og eðlileg mannréttindi. Rétturinn til tjáningar á kynvitund, kynhlutverkum og kynhneigð fellur einnig undir sömu réttindi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Tilefnið er nýlegt blogg Páls um kynfræðslu og hinsegin fræðslu í grunnskólanum sem skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ sá sig knúinn til að senda tölvupóst til nemenda og forráðamanna þeirra í skólanum.

Kristinn Þorsteinsson skólameistari sagði skrif Páls hafa valdið skólanum skaða sem væri þó léttvægur miðað við þá vanlíðan sem skrifin geti valdið hinsegin nemendum innan skólans.

„Málfrelsi er líka mannréttindi en málfrelsið nær ekki yfir að meiða, smána eða valda öðrum sársauka og vanlíðan með opinberum skrifum. Slíkt getur brotið gegn grein númer 233 í almennum hegningarlögum,“ segir í tilkynningu frá Hinseginfélagi FG.

„Samkvæmt siðareglum Kennarasambands Íslands ber kennurum bæði að bera virðingu fyrir fjölbreytileika og að gæta að framkomu sinni á opinberum vettvangi. Umræða um hinsegin málefni, málefni trans fólks og fleiri minnihlutahópa hér á landi virðist fylgja sama mynstri og víða erlendis á þann hátt að umburðarlyndi er að minnka og fordómar og hatursorðræða eru að aukast. Það er ótrúlega sorglegt,“ segir í tilkynningunni.

Hinseginfélag FG hvetur til opinnar umræðu án fordóma og fyrirlitningar um málefni hinsegin, trans fólks og annarra hópa fólks. Slík umræða er leiðin til gagnkvæmrar virðingar og er um leið gæðastimpill á samfélagið. Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku samfélagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×