Höfðu afskipti af ungmennum að veiða dúfur Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2023 06:12 Lögregla hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt hafði verið um ungmenni að reyna að lokka til sín dúfur og handsama þær í miðborg Reykjavíkur.
Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglu þar sem segir frá verkefnum gærkvöldsins og næturinnar. Þar segir að lögregla hafi farið á vettvang og rætt við ungmennin. Þau hafi reynst vera með gildru meðferðis og voru þá þegar búin að veiða tvær dúfur og setja þær ofan í bakpoka. Í tilkynningunni segir einni frá því að lögregla hafi sinnt útköllum vegna manna í annarlegu ástandi, meðal annars öldauðs manns í anddyri hótels í miðborginni. Sömuleiðis var tilkynnt um tónlistarhávaða í miðborginni. Á svæði lögreglustöðvar sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ segir að þar hafi verið tilkynnt um innbrot í heimahúsi þar sem verðmætum hafi verið stolið og er málið í rannsókn. Þá hafi ökumaður verið handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Sá hafi reynt að komast undan lögreglu en án árangurs og var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Á svæði lögreglu sem sinnir verkefnum í Kópavogi og í Breiðholti var tilkynnt um mann sem hafði dottið af rafmagnshlaupahjóli. Lögregla hafi verið á vettvang ásamt sjúkraliði, en maðurinn er grunaður um að hafa verið ölvaður á rafmagnshlaupahjólinu. Hann var fluttur á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar. Á svæði lögreglustöðvar 4, sem nær yfir Grafarvog, Árbæ og Mosfellsbæ, var tilkynnt um tvær líkamsárásir, tvö umferðarslys og eitt hestaslys.
Lögreglumál Reykjavík Fuglar Mest lesið Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Innlent „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Fleiri fréttir Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Tjá sig ekki um málið Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn á Kársnesi Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Sjá meira