Síminn og spjaldtölvan tekin af Murdaugh Samúel Karl Ólason skrifar 31. ágúst 2023 13:49 Alex Murdaugh með lögfræðingum sínum þegar hann var dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. AP/Joshua Boucher Dæmdi morðinginn Alex Murdaugh hefur misst aðgang sinn að síma og spjaldtölvu. Það er eftir að lögmaður hans tók Murdaugh upp lesa úr dagbók sinni en upptökuna á að nota í heimildarmynd um mál hans.
Með þessu braut Murdaugh fangelsisreglur en hann er einni sagður hafa brotið fleiri reglur eins og með því að nota lykilorð annars fanga til að hringja símtöl, samkvæmt AP fréttaveitunni. Murdaugh missti einnig rétt sinn á því að kaupa vörur í verslun fangelsisins í mánuð. Fangelsisreglur í Suður-Karólínu meina föngum að tala við fjölmiðla án leyfis. Talsmaður fangelsismálastofnunar ríkisins segir reglurnar hafa verið settar á svo fórnarlömb dæmdra manna eða fjölskyldur þeirra þurfi ekki að sjá eða heyra í mönnum sem brutu á þeim í fjölmiðlum. Murdaugh var dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi í mars fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Eiginkona og sonur Alex Murdaugh, Maggie Murdaugh, 52 ára, og Paul, 22 ára, voru skotin til bana þann 7. júní 2021, nærri hundabúrum á stórri landareign fjölskyldunnar í Suður-Kaliforníu. Alex Murdaugh hafði samband við Neyðarlínuna umrætt kvöld og sagðist þá hafa komið að þeim látnum eftir um klukkustundar heimsókn til móður sinnar sem sé með elliglöp. Rannsókn leiddi síðar í ljós að Maggie hafði verið skotin fjórum eða fimm sinnum með riffli en Paul var skotinn tvisvar með haglabyssu og með misstórum höglum. Enginn var handtekinn vegna málsins í rúmt ár en Murdaugh var að lokum ákærður fyrir morðin í júlí á síðasta ári. Hann neitar enn sök. Morðvopnin fundust aldrei en tuttugu mánuðum eftir morðin kom í ljós að Murdaugh hafði logið um hvar hann hefði verið. Myndband sem fannst á síma sonar hans sýndi að hann var á staðnum þar sem morðin voru framin, fimm mínútum áður en talið er að þau hafi verið framin. Morðmálið hefur vaktið mikla athygli í Bandaríkjunum og víðar og hefur meðal annars verið gerð heimildarmynd sem sýnd er á Netflix. Myndin snýr einnig að atviki frá 2019 þegar Paul Murdaugh varð valdur að bátaslysi þar sem ung kona, farþegi í bátnum, dó. Þegar réttarhöldin gegn Murdaugh fóru fram hélt hann dagbækur og tók lögmaður hans hann upp lesa úr dagbókunum. Var það ætlað í heimildarmynd sem Fox Nation er að vinna að. Samkvæmt frétt AP hefur lögmanninum verið gert ljóst að hjálpi hann skjólstæðingi sínum aftur að brjóta reglur fangelsisins verði honum meinaður aðgangur að Murdaugh. Murdaugh mun aftur sjást í dómsal í næsta mánuði en þá er búist við því að hann muni játa að hafa stolið milljónum dala af skjólstæðingum sínum. Það verður í fyrsta sinn sem hann játar glæp en saksóknarar hafa haldið því fram að Murdaugh hafi framið morðin til að fá samúð, þar sem hann bjóst við því að þjófnaður hans væri við það að líta dagsins ljós.
Bandaríkin Tengdar fréttir Sátt náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Beach Sátt hefur náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Mallory Beach og annarra ungmenna sem voru um borð í bát í eigu Alex Murdaugh sem ekið var á brúarstólpa árið 2019. Murdaugh var nýlega fundinn sekur um að myrða eiginkonu sína og yngri son, Paul, sem var við stýrið á bátnum. 18. júlí 2023 10:02 Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. 20. mars 2023 07:47 Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í nótt fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son í þeim tilgangi að draga athyglina frá margmilljóna dala efnahagsbrotum sínum. 3. mars 2023 06:37 Umtöluð réttarhöld að enda komin: „Ég myndi aldrei skaða þau“ Réttarhöld gegn bandarískum lögmanni sem grunaður er um að hafa myrt eiginkonu sína og son eru að enda komin. Mál Alex Murdaughs og morðin hafa vakið mikla athygli og hefur meðal annars verið fjallað um málið í heimildarþáttum á Netflix. 1. mars 2023 11:10 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira
Sátt náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Beach Sátt hefur náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Mallory Beach og annarra ungmenna sem voru um borð í bát í eigu Alex Murdaugh sem ekið var á brúarstólpa árið 2019. Murdaugh var nýlega fundinn sekur um að myrða eiginkonu sína og yngri son, Paul, sem var við stýrið á bátnum. 18. júlí 2023 10:02
Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. 20. mars 2023 07:47
Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í nótt fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son í þeim tilgangi að draga athyglina frá margmilljóna dala efnahagsbrotum sínum. 3. mars 2023 06:37
Umtöluð réttarhöld að enda komin: „Ég myndi aldrei skaða þau“ Réttarhöld gegn bandarískum lögmanni sem grunaður er um að hafa myrt eiginkonu sína og son eru að enda komin. Mál Alex Murdaughs og morðin hafa vakið mikla athygli og hefur meðal annars verið fjallað um málið í heimildarþáttum á Netflix. 1. mars 2023 11:10