Íslenskur faðir hræddur um líf sitt eftir árásir unglingspilta Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 26. ágúst 2023 08:00 Daníel Viðar hefur verið búsettur í Árósum ásamt eiginkonu sinni og ungum syni þeirra undanfarin tvö á og segist hingað til aldrei hafa upplifað sig óöruggan. Aðsend „Mér finnst erfitt að trúa því að unglingar í dag geti verið svona hættulegir. Þetta eru ekki bara einhverjir strákar að fíflast. Þetta er komið á það stig að ég er í alvörunni hræddur um líf mitt, og ég er líka hræddur um konuna mína og barnið mitt,“ segir Daníel Viðar Hólm sem búsettur er í Árósum í Danmörku en hann varð í tvígang fyrir aðkasti og árásum af hálfu unglingahóps sem ógnuðu honum með hníf og hótuðu honum lífláti.
Daníel Viðar hefur verið búsettur í Árósum ásamt eiginkonu sinni og ungum syni þeirra undanfarin tvö ár og starfar sem vefsíðuhönnuður Hjá DH Web Design. „Heilt yfir þá hefur okkur liðið mjög vel að búa hér og við höfum aldrei upplifað okkur óörugg eða neitt slíkt,“ segir Daníel í samtali við Vísi. „You will die" Að kvöldi 9. ágúst síðastliðinn var Daníel á leiðinni út úr verslunarmiðstöð í Gellerupparken hverfinu. „Ég var að labba yfir brú þegar það var allt í einu skotið í mig stálkúlu úr teygjubyssu. Ég kom þá auga á nokkra unglingsstráka og einn þeirra hélt á teygjubyssunni.“ Daníel segist gera ráð fyrir að piltanir hafi verið í kringum 14 eða 15 ára og voru þeir dökkir á hörund. „Ég hélt auðvitað fyrst að þetta væru bara einhverju fíflalæti, eða hrekkir hjá þeim, enda voru þetta bara krakkar. Ég byrjaði að labba í átt að þeim og kallaði á þá á ensku „What the fuck are you doing?“ Einn strákurinn tók þá allt í einu upp hníf og byrjaði að öskra: „You will die!“ Síðan henti hann hnífnum í mig, og bakið á hnífnum í höndina á mér,“ segir Daníel en hnífurinn var að hans sögn í kringum 20 sentimetrar. Daníel segir piltana hafa lagt á flótta eftir að hann tók upp símann sinn og hótaði að hringja á lögregluna. „Ég reyndi að fylgjast með og sjá hvert þeir væru að fara en týndi þeim strax,“ segir hann en hann segist hafa fengið lítil viðbrögð þegar hann tilkynnti lögreglu um atvikið. „Það var augljóst að lögreglan leit bara á þetta sem einhver strákapör.“ Daníel segist hafa verið ansi skelkaður eftir atvikið, en reynt að hrista það af sér. Hann birti færslu inni á facebook hópi fyrir íbúa á svæðinu þar sem hann biðlaði til foreldra að huga að því hvað unglingarnir þeirra væru að gera á kvöldin. Í kjölfarið hafði fréttamaður TV2 samband við Daníel og birti frétt um málið. Var í sjokki Þann 15. ágúst síðastliðinn, sex dögum eftir fyrri árásina, varð Daníel aftur fyrir aðkasti frá piltunum. Atvikið átti sér stað á nákvæmlega sama stað og seinast, en í þetta sinn um hábjartan dag. „Ég fór út í búð til að kaupa bleyjur og var á leiðinni heim á hjólinu mínu þegar ég mætti þeim. Allt í einu birtust þeir vinstra megin við mig. Ég stoppaði, var í hálfgerðu sjokki, og spurði þá hvort þeir myndu eftir mér. Síðan benti ég þeim á að það væri ólöglegt að ganga um með hnífa.“ Að sögn Daníels brugðust piltanir við með sama hætti og seinast, ein þeirra dró húfuna hans niður fyrir andlitið á honum. Þvínæst hafi þeir dregið upp hníf og hótað honum lífláti. Daníel segist hafa náð að komast undan á hjólinu, en hann var símalaus. „Ég komst heim, fékk símann hjá konunni minni og hringdi í lögregluna. Í þetta sinn komu þeir og tóku skýrslu.“ Daníel segir að eftir seinni árásinni hafi hann orðið virkilega hræddur. Hann þorir ekki lengur að fara í verslunarmiðstöðina þar sem árásirnar áttu sér stað. Daníel segist vera afar skelkaður eftir árásirnar og finnst erfitt að vita af piltunum þarna úti.Aðsend „Daginn eftir seinni árásina þá þorði ég ekki einu sinni að fara út. Núna, þegar ég er fer út þá er ég alltaf að líta um öxl og þegar ég sé einhverja unga stráka sem líkjast þeim þá spennist ég allur upp,“ segir hann. Sjálfur segist hann upplifa hann sig niðurlægðan, enda nær þrítugur fullvaxta karlmaður á meðan piltarnir eru á unglingsaldri. Í samtali við TV2 fréttastofuna staðfesti lögreglan á Austur Jótlandi að tilkynning hefði borist um málið og sagði það vera í rannsókn. „En ég veit ekkert hver staðan er á þessu, hvort þeir hafi náð þessum strákum eða ekki. Þessi óvissa er alveg hrikaleg.“
Danmörk Íslendingar erlendis Mest lesið Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Innlent Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Átján ára sótti áfengissendingu Innlent Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Sjá meira