Viðskipti innlent

Vaktin: Seðla­bankinn hækkar stýri­vexti enn á ný

Atli Ísleifsson og Kjartan Kjartansson skrifa
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og félagar hans í peningastefnunefnd munu kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi í Safnahúsinu klukkan 9:30.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og félagar hans í peningastefnunefnd munu kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi í Safnahúsinu klukkan 9:30. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,50 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 8,75 prósentum í 9,25.

Greint er frá ákvörðuninni í yfirlýsingu frá peningastefnunefnd Seðlabankans sem birt var 8:30. Um er að ræða fjórtándu stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð.

Í yfirlýsingu bankans segir að verðbólga hafi hjaðnað undanfarið og mælst 7,6 prósent í júlí. 

„Framlag húsnæðisliðarins til verðbólgu hefur minnkað, dregið hefur úr alþjóðlegum verðhækkunum og gengi krónunnar hækkað. Innlendar verðhækkanir hafa hins vegar reynst þrálátar og eru enn á breiðum grunni. Undirliggjandi verðbólga hefur því minnkað hægar en mæld verðbólga og var 6,7% í júlí.

Hagvöxtur mældist 7% á fyrsta fjórðungi þessa árs og atvinnuleysi hefur haldið áfram að minnka. Enn er því töluverð spenna á vinnumarkaði og í þjóðarbúinu í heild þótt vísbendingar séu um að tekið sé að hægja á vexti efnahagsumsvifa.

Verðbólguhorfur til lengri tíma hafa lítið breyst þótt horfur til skamms tíma hafi batnað frá því í maí. Þá eru verðbólguvæntingar til lengri tíma vel yfir markmiði. Því er enn hætta á að verðbólga reynist þrálát.

Í ljósi þess er nauðsynlegt að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar. Einkum er mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags. Vísbendingar eru um að áhrif vaxtahækkana undanfarin misseri séu að koma skýrar fram og mun peningastefnan á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í yfirlýsingunni.

Fréttastofa mun fylgjast með gangi mála í vaktinni að neðan og segja fréttir af ákvörðun peningastefnunefndar og viðbrögðum við henni á öllum miðlum í dag. Ef vaktin birtist ekki að neðan gæti þurft að endurhlaða síðuna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira
×