Tuttugu ár frá því að Eliza flutti með Guðna til Íslands Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. ágúst 2023 13:10 Guðni og Eliza saman árið 2003 þegar þau fluttu til landsins eftir nám í Bretlandi. Facebook Í dag eru tuttugu ár frá því að Eliza Reid, forsetafrú, flutti til landsins með þáverandi unnusta sínum, Guðna Th Jóhannessyni. Hún minnist þess hvernig halloumi-ostur var ófáanlegur og hvernig hún gat ekki leigt spólur vegna stirðra reglna. Hún hafi verið heppin að mæta ekki sömu fordómum og aðrir innflytjendur.
Eliza greindi frá þessu í færslu á Facebook í dag. Í færslunni fer hún yfir söguna og lýsir upplifun sinni sem innflytjanda á Íslandi. Hún rifjar upp hvernig þau hjónin fluttu til Íslands árið 2003 og keyptu sér fyrstu íbúðina sína sem var 97 fermetrar í 101 fyrir 10,8 milljónir króna. Hún hafi í kjölfarið fengið vinnu og byrjaði á íslenskunámskeiði sem voru átta klukkustundir í viku að loknum vinnudegi. Engin halloumi og ekki hægt að leigja spólur Þá rifjar hún upp þau skondnu vandamál sem blöstu við henni sem innflytjenda „Ég skrifaði í dagbókina mína, alveg án nokkurrar kaldhæðni, um þann vanda í þessu nýja landi að sum matvæli skorti alveg, einkum halloumi-ost (sem fæst núna) og gott creme fraiche (sem ég hef ekki enn fundið). Ég man líka að mánuðum saman gat ég ekki leigt spólur á vídeóleigunni því til þess þurfti kennitölu og þar var kerfið bara uppfært tvisvar á ári,“ skrifar hún. „Já, það var svo sannarlega erfitt fyrir mig að vera innflytjandi...“ Eliza Reid gaf út bókina Sprakka árið 2022.Vísir/Vilhelm Lykilatriði að skapa sér sinn eigin tilverugrundvöll Þau hjónin hafi flutt til landsins eftir að hafa kynnst á Englandi og búið þar í tæp fimm ár. Guðni hafi verið staðráðinn í að flytja heim þar sem hann gæti verið nærri dóttur sinni af fyrra hjónabandi. Hún flutti því vegna hans, en vildi búa á Íslandi sjálfrar sín vegna. „Strax frá fyrsta degi í nýju landi var lykilatriði fyrir mig að skapa minn eigin tilverugrundvöll, óháð maka mínum. Ég vildi skapa mér starfsframa, eignast eigin vini, eigin áhugamál og tómstundir,“ skrifar hún. Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson á góðri stundu.Vísir/Vilhelm Hún segist hafa verið heppin að fá vinnu innan mánaðar þar sem nám hennar og reynsla nýttust vel. Hún naut þess líka að geta strax tekið krefjandi námskeið í íslensku þannig að smám saman náði hún betri tökum á tungumálinu. „Svo gekk ég í kór og tók að mér sjálfboðastörf í Rauðakrossbúðinni á Landspítalanum.“ „Þar að auki vissi ég að ég væri ekkert á förum hvað úr hverju. Ég vissi að það var bara ekki í boði að hverfa á braut þegar skammdegið helltist yfir, þegar ég pirraði mig á því hversu erfitt það gat stundum verið að kynnast heimafólkinu, þegar ég missti vinnuna eftir ár og fann ekki annað starf í dálítinn tíma. Ég ákvað mæta öllum þessum andbyr og bugast ekki,“ skrifar hún. Heppin að mæta ekki sömu fordómum og aðrir innflytjendur Allt þetta sýni hve heppin hún var. Hún gat lært íslensku af því hún var í vel launuðu starfi, hún bjó í miðbænum og var því nálægt félagslífi og var með innfæddan maka sem studdi hana og hjálpaði henni að skilja siði og venjur. Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson við stjórnarráðið.Vísir/Vilhelm „Ég kom frá öðru ríku landi og minn bakgrunnur var þannig að ég mætti ekki sömu fordómum og margir aðrir innflytjendur,“ skrifar hún. Að lokum segir hún að fyrir tuttugu árum hafi hún átt sér draum að setjast að Íslandi, „var bæði spennt og dálítið kvíðin yfir því að ætla að lifa um langt skeið á þessari eyju úti í hafi.“ Þá gat hún þó ekki séð fyrir að hún og Guðni myndu eignast fjögur börn til viðbótar við dóttur hans, að hún myndi stofna ritlistarbúðir og gefa út bók eða þá að verðandi eiginmaður hennar yrði næsti forseti landsins. „Þetta hefur svo sannarlega verið mikið ævintýri. Megi næstu 20 ár vera eins góð og árin eftir það líka!“
Guðni Th. Jóhannesson Innflytjendamál Forseti Íslands Tímamót Mest lesið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Söngvari YMCA látinn Tónlist Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Fleiri fréttir Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sjá meira