„Wagner málaliðahópurinn er ekki til“ Samúel Karl Ólason skrifar 14. júlí 2023 11:01 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og Yevgeny Prigozhin, stofnandi og eigandi Wagner group. AP/Telegram Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist hafa boðið málaliðum Wagner group að berjast áfram í Úkraínu en að auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hafi hafnað því. Þetta mun hafa gerst á fundi þann 29. júní, nokkrum dögum eftir uppreisn Wagner og sókn málaliðanna að Moskvu.
Forsetinn ræddi við blaðamann ríkisrekna dagblaðsins Kommersant í gær þar sem hann sagði í fyrsta sinn frá sinni hlið af fundinum sem á að hafa farið fram. Pútín sagði 35 málaliða hafa fylgt Prigozhin á fundinn og að hann hafi staðið yfir í þrjár klukkustundir. „Þeir hefðu allir getað haldið hópinn og haldið áfram að þjóna,“ sagði Pútín. „Ekkert hefði breyst fyrir þá. Þeir hefðu áfram verið leiddir af sama manni og hefur verið raunverulegur yfirmaður þeirra allan þennan tíma.“ Pútín sagði einnig að þegar hann lagði fram tilboð sitt hafi margir kinkað kolli en Prigozhin hafi þvertekið fyrir að menn hans myndu taka því. Er uppreisn Wagner stóð yfir í síðasta mánuði lögðu málaliðarnir undir sig borgina Rostov og stefndu hraðbyr að Moskvu. Hópur þeirra er sagður hafa sett stefnuna á rússneska herstöð þar sem kjarnorkuvopn eru geymd. Prigozhin hélt því fram að rússneski herinn hefði gert árásir á bækistöð Wagner í austurhluta Úkraínu og að margir málaliðar hefðu fallið og ætlaði hann að handsama Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands. Rússneskir hermenn lögðu víða niður vopn, í stað þess að reyna að stöðva málaliðana en fáir ef einhverjir hermenn gengu til liðs við þá. Hreinsanir í hernum Síðan þá hafa fregnir borist af því að rússneskir herforingjar hafi verið handsamaðir. Aðrir hafa verið reknir úr starfi. Ekki er vitað hvar Prigozhin er staddur en hann hafði þar til í morgun ekki sést frá því uppreisnin átti sér stað. Í morgun birtist mynd af honum á samfélagsmiðlum sem sýnir Prigozhin sitja á brókinni í rúmi og er hann að virðist í tjaldi. Hvar tjaldið er liggur ekki fyrir. Hann gæti verið staddur í Belarús, þar sem tjaldbúðir fyrir málaliða Wagner hafa verið reistar, en hann hann gæti einnig verið í einni af bækistöðvum Wagner í austurhluta Úkraínu. Russian media publish a reportedly recent photo of Prigozhin in a field tent in (allegedly) Belarus. pic.twitter.com/MNXSBhffui— Anton Gerashchenko (@Gerashchenko_en) July 14, 2023 Í frétt Wall Street Journal segir að samkvæmt heimildum miðilsins séu forsvarsmenn Varnarmálaráðuneytisins að elta uppi menn sem þeir gruna um svik eða litla hollustu. Þessi hreinsun er sögð umfangsmeiri en áður hafi komið fram. WSJ segir minnst þrettán háttsetta herforingja hafa verið yfirheyrða og um fimmtán hafa verið rekna eða færða til í starfi. Kommersant hefur eftir Pútín að hinir almennu málaliðar Wagner hefðu barist vel og leiðinlegt væri að þeir hefðu verið dregnir inn í þessa atburðarrás. Reiddist við spurningu um Wagner Er hann var spurður hvort Wagner myndi áfram koma að átökunum í Úkraínu virðist sem Pútín hafi orðið æstur, samkvæmt grein Kommersant. „Sko, Wagner málaliðahópurinn er ekki til,“ sagði hann. „Við höfum engin lög um málaliðahópa. Hann er einfaldlega ekki til.“ Shoigu, áðurnefndur varnarmálaráðherra, tilkynnti í síðasta mánuði að málaliðahópar yrðu felldir inn í rússneska herinn en Wagner group er þar á meðal. Prigozhin var mjög svo mótfallinn því en hann og Shoigu hafa lengi eldað grátt silfur saman. Líkur hafa verið leiddar að því að yfirlýsing Shoigu hafi verið dropinn sem fyllti mæli auðjöfursins og þess vegna hafi hann gert uppreisn. Málaliðar Wagner hafa spilað stóra rullu í innrás Rússa í Úkraínu en gera það ekki lengur. Talsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sögðu í gær að málaliðarnir kæmu ekki lengur að átökum í Úkraínu. Yfirvöld í Rússlandi segja að málaliðarnir séu að láta vopn sín af hendi.
Rússland Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Borgarar pyntaðir í haldi Rússa og neyddir til þrælkunarvinnu Rússar halda þúsundum óbreyttra úkraínskra borgara í fangelsum, bæði á yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og í Rússlandi. Verið er að undirbúa mögulega fangelsun þúsunda Úkraínumanna til viðbótar en margir borgarar eru þvingaðir til þrælkunarvinnu. 13. júlí 2023 23:13 Biden segir Bandaríkin og Norðurlönd deila sögu og framtíðarsýn Forsætisráðherra segir leiðtoga Norðurlandanna hafa átt mjög frjálslegan og opinn fund með forseta Bandaríkjanna í Helsinki í dag. Auk öryggismála hafi meðal annars verið rætt um jafnréttis- og loftslagsmál ásamt málefnum Norðurslóða. Bandaríkjaforseti segir ríkin deila sameiginlegri sýn um frelsi og samvinnu. 13. júlí 2023 19:20 Úkraína með annan fótinn í dyragætt NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins og G7 ríkjanna hétu því í dag að tryggja að Úkraína fái allt það sem landið þurfi á að halda til að mæta öllu ógnum sem kunna að steðja að landinu. Þá verður aðildarferli landsins að fullri aðild að NATO einfaldað til muna. 12. júlí 2023 19:29 Ungverjar einnig hlynntir aðild Svía að NATO Yfirvöld í Ungverjalandi ætla að styðja inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið en utanríkisráðherra landsins sagði í morgun að samþykkt innngöngu Svía væri nú eingöngu tæknilegs eðlis. Tyrkir og Ungverjar voru þeir einu sem settu sig á móti inngöngu Svía en Peter Szijjarto, áðurnefndur utanríkisráðherra, sagði í síðustu viku að Ungverjar myndu fylgja Tyrkjum, skiptu þeir síðarnefndu um skoðun. 11. júlí 2023 10:27 Verja klasasprengjusendingar til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði í gær þá ákvörðun sína að senda klasasprengjur til Úkraínu. Hann sagði ákvörðunina erfiða en vopnin eru ólögleg í mörgum löndum heims. 8. júlí 2023 14:13 Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Sjá meira
Borgarar pyntaðir í haldi Rússa og neyddir til þrælkunarvinnu Rússar halda þúsundum óbreyttra úkraínskra borgara í fangelsum, bæði á yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og í Rússlandi. Verið er að undirbúa mögulega fangelsun þúsunda Úkraínumanna til viðbótar en margir borgarar eru þvingaðir til þrælkunarvinnu. 13. júlí 2023 23:13
Biden segir Bandaríkin og Norðurlönd deila sögu og framtíðarsýn Forsætisráðherra segir leiðtoga Norðurlandanna hafa átt mjög frjálslegan og opinn fund með forseta Bandaríkjanna í Helsinki í dag. Auk öryggismála hafi meðal annars verið rætt um jafnréttis- og loftslagsmál ásamt málefnum Norðurslóða. Bandaríkjaforseti segir ríkin deila sameiginlegri sýn um frelsi og samvinnu. 13. júlí 2023 19:20
Úkraína með annan fótinn í dyragætt NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins og G7 ríkjanna hétu því í dag að tryggja að Úkraína fái allt það sem landið þurfi á að halda til að mæta öllu ógnum sem kunna að steðja að landinu. Þá verður aðildarferli landsins að fullri aðild að NATO einfaldað til muna. 12. júlí 2023 19:29
Ungverjar einnig hlynntir aðild Svía að NATO Yfirvöld í Ungverjalandi ætla að styðja inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið en utanríkisráðherra landsins sagði í morgun að samþykkt innngöngu Svía væri nú eingöngu tæknilegs eðlis. Tyrkir og Ungverjar voru þeir einu sem settu sig á móti inngöngu Svía en Peter Szijjarto, áðurnefndur utanríkisráðherra, sagði í síðustu viku að Ungverjar myndu fylgja Tyrkjum, skiptu þeir síðarnefndu um skoðun. 11. júlí 2023 10:27
Verja klasasprengjusendingar til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði í gær þá ákvörðun sína að senda klasasprengjur til Úkraínu. Hann sagði ákvörðunina erfiða en vopnin eru ólögleg í mörgum löndum heims. 8. júlí 2023 14:13
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent