„Hjartsláttarfrumvarp“ samþykkt í Iowa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. júlí 2023 07:02 Efnt var til mótmæla í þinghúsinu í gær þegar frumvarpið var samþykkt. AP/Hannah Fingerhut Ný lög hafa verið samþykkt í Iowa í Bandaríkjunum sem banna þungunarrof í nær öllum tilvikum eftir að hjartsláttur finnst, sem er yfirleitt eftir sex vikna meðgöngu, fyrir þann tíma sem flestar konur vita að þær eru óléttar.
Aðeins þingmenn Repúblikanaflokksins greiddu atkvæði með frumvarpinu en það dugði til þar sem þeir eru í meirihluta í báðum þingdeildum Iowa-þings. Lögin taka gildi um leið og ríkisstjórinn hefur undirritað þau, sem er á dagskrá á föstudag. Nokkrar undanþágur eru gerðar frá hinu sex vikna viðmiði; til dæmis þegar um er að ræða þungun í kjölfar nauðgunar eða sifjaspells. Þá verður heimilt að framkvæma þungunarrof fram að 20. viku þegar bráð hætta steðjar að lífi móðurinnar. Tuttugasta vikan var viðmiðið samkvæmt þeim lögum sem nú falla úr gildi. Ríkisstjórinn Kim Reynolds segir um að ræða réttlæti til handa hinu ófædda barni en samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hafa þegar verið lögð drög að kærum vegna nýju lagasetningarinnar. Áþekk lög sem voru samþykkt í Iowa árið 2018 voru stöðvuð af hæstarétti ríkisins en síðan þá hefur Hæstiréttur Bandaríkjanna fellt úr gildi dóminn í Roe gegn Wade, sem hafði fram að því tryggt öllum konum réttinn til að gangast undir þungunarrof.
Bandaríkin Þungunarrof Mannréttindi Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira