„Unicorn fyrirtæki eru þau start-up eða frumkvöðlafyrirtæki sem vinna gullið á ólympíuleikunum í efnahagslífi heimsins. Kerecis hefur unnið gullið.“ Þannig lýsti Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands tíðindum dagsins. En í Bandaríkjunum eru sprotafyrirtæki sem ná að verða verðmætari en einn milljarður dollara kölluð Unicorn eða einhyrningsfyrirtæki.
Ólafur Ragnar hafði milligöngu um að Laurene Powell Jobs, ekkja Apple frumkvöðulsins Steve Jobs fjárfesti í Kerecis. Fyrirtækið var stofnað utan um hugmynd Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar og þróuð í Háskólasetrinu á Ísafirði, um að nýta þorskroð til að græða sár.

Kerecis er nú búið að breyta vinnslu á úrgangi í fiskvinnslu í verðmætasta fyrirtæki landsins. Verðmætara en Icelandair og Eimskip til samans. Vöxtur Kerecis hefur svo sannarlega verið ævintýri líkastur. Starfsemin hófst á Ísafirði fyrir rétt rúmlega áratug og í dag er fyrirtækið eitt stærsta líftæknifyrirtæki í heiminum, að sögn stofnandans.

Hluthafar Kercis eru 400, margir þeirra einstaklingar og fyrirtæki á Ísafirði, sem nú hafa efnast vel á sölunni til danska fyrirtækisins Coloplast, meðal annars hópur starfsmanna. Guðmundur Fertram taldi upp nöfn nokkurra þeirra sem voru á fundinum í dag og þakkaði þeim fyrir að trúa á hugmyndina og leggja sitt af mörkum.
„Við erum með gríðarlega sterkan infrastrúktúr í Bandaríkjunum, gott stjórnendateymi og hátt í þrjúhundruð sölumenn. Þetta batterí verður allt óbreytt. Kerecis verður rekið áfram sem sjálfstæð eining, ég verð áfram forstjórinn, varan okkar verður aðgengileg í miklu fleiri löndum út um allan heim. Allt þetta, allar þessar vörur fyrir þessi hundrað og fimmtíu lönd, þær verða framleiddar hér á Ísafirði í verksmiðjunni okkar,“ segir Guðmundur Fertram.

Kerecis hefur meðal annars samninga við bæði bandaríska flotann og landherinn fyrir græðandi umbúðir sínar og sterka markaðasstöðu í Bandaríkjunum. Er með 300 starfsmenn vestanhafs. Danska fyrirtækið, sem stofnað var 1958, hefur hins vegar mikið forskot með sínar lækningavörur í Evrópu og annars staðar í heiminum. Coloplast er til dæmis ráðandi á framleiðslu stomavara í heminum.
Þessa dagana er Kerecis að byggja nýtt hús þar sem sameina á tvær verksmiðjur á Ísafirði í nýju sex þúsund fermetra húsnæði. Framleiðslan verður því áfram á Ísafirði enda markaðsleyfið í Bandaríkjunum bundið við afurðirnar þaðan og vinnsluna þar.
Forstjórinn segir nóg til af roði til að standa undir aukinni framleiðslu.
„Já, það er til nóg af roði. Bara með því roði sem fellur til hér á Ísafirði getum við verið með 100 prósent markaðshlutdeild um allan heim. Við notum 0,01 prósent af því roði sem fellur til á landinu í dag,” segir Guðmundur Fertram.

Ólafur Ragnar sagði daginn ekki bara einn stærsta dag í atvinnusögu Vestfirðinga og Íslendinga.
„Þetta eru líka risa skilaboð til veraldarinnar í baráttunni við loftslagsbreytingar og fyrir sjálfbærni. Að við getum varðveitt lífríki jarðarinnar og hafsins en engu að síður skapað okkur í krafti nýrra auðlinda og hugvits farsæla framtíð.”
Sem gamall Ísfirðingur og forseti Íslands, ertu stoltur frá þeim sjónarhóli?
„Já meira en stoltur. Bara glaður í hjarta mínu á þann hátt sem erfitt er að lýsa. …. Kannsli er þetta stærsti dagurinn fyrir mig síðan ég fæddist hér á Ísafirði,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson í gamla heimabænum í dag.