Katrín Edda er menntaður verkfræðingur og gegnir starfi hjá tæknirisanum Bosch. Hún hefur leyft fylgjendum sínum að fylgjast með undirbúningi brúðkaupsins en hún er með opinn reikning þar sem ríflega 30.000 fylgjast daglegs með hennar hversdagslegu venjum.

Spurð hvernig undirbúningurinn gangi segir Katrín allt sé að smella.
„Það eru bara nokkrir smáhlutir eftir til að klára núna á næstu vikum. Hann Markus minn er þýskur og hefur lítið um málið að segja, í hvaða kirkju athöfnin verði eða hvar veisluna skuli halda. Ég sé svolítið um þetta sjálf. Hann hefur enga sérstaka skoðun á skrauti og finnst allt sem ég vel flott hvort sem er. Með öðrum orðum erum við sammála um allt.“
En komandi frá sitt hvoru landinu, eru einhverjar hefðir sem stangast á?
„Það eru engar stífar þýskar hefðir svo ég viti til en okkar brúðkaup verður mjög klassískt á íslenskan mælikvarða. Þýsku gestirnir sem koma hingað til lands eru samtals tólf að ógleymdum fjórum frá Svíþjóð svo í heildina verður þetta eftir hefðbundnu sniði.“

Saman á parið dótturina Elísu Eyþóru, sjö mánaða. Katrín segir ömmuna og afann verða í pössunarhlutverkinu yfir brúðkaupsnóttina.
Hún segir fæðingu dóttur sinnar aðeins hafa seinkað brúðarkjólaplönum.
„Ég gat ekki byrjað að skoða kjól fyrr en núna í janúar þar sem ég fæddi stelpuna mína í desember en ég var svo heppin að í annarri búðinni sem ég prófaði kjóla fann ég fullkomna kjólinn og er ótrúlega spennt að klæðast honum.“

Þegar talið berst að matseðlinum segir Katrín það ekki hafa verið neitt flækjustig.
„Það verður sjávarréttasúpa í forrétt og svo lamb í aðalrétt fyrir alla nema þá sem ekki borða kjöt, eins og mig. Þá er í boði lax eða vegan Wellington. Í eftirrétt er svo geggjuð brúðkaupsterta og eftirréttaplatti í boði Sætra Synda og nammibar í boði Nóa Siríus og Panda. Á miðnætti kemur Castello með pizzur fyrir alla. Það ætti að minnsta kosti enginn að verða svangur eftir þetta brúðkaup.“
Veislan verður haldin í salnum Háteigi á Grand Hóteli og brúðkaupsnóttin á svítunni þar.

Dóttirin með í brúðkaupsferðina
Spurð hvort verðandi hjón séu farin að skipuleggja brúðkaupsferð segir Katrín að þeirra fyrsta val hafi verið að fara frekar í klassíska Mallorca ferð nú í september og taka litlu dótturina með. Hótelið verði þó fimm stjörnu til að gera upplifunina aðeins sérstakari.
„Það er nægur tími til að fara seinna eitthvert lengra bara tvö.“