Jón Guðni Ómarsson tók við starfi bankastjóra Íslandsbanka í gær, eftir að Birna Einarsdóttir hætti störfum aðfararnótt miðvikudags. Hann segir að hans fyrsta verk verði að bregðast við kröfum Fjármálaeftirlitsins samkvæmt samkomulagi um sátt við bankann, vegna fjölmargra brota sem framin voru við útboð á tæplega fjórðungs hlut í bankanum á síðasta ári.
„Núna erum við að fara yfir það nákvæmlega hvað við þurfum að gera í framhaldinu. Eitthvað af því er hægt að gera hratt og vel en annað tekur aðeins lengri tíma,“ segir Jón Guðni í samtali við fréttastofu.
Sjá einnig: Jón Guðni ráðinn bankastjóri af stjórn Íslandsbanka
Tekur undir orð forvera síns
Í sáttinni segir meðal annars að ekki hafi tekist að innleiða sterka áhættumenningu innan bankans.
Þú hefur starfað hérna lengi, heldurðu að þú sért ekkert samdauna þessu. Ert þú maðurinn til að vinda ofan af einhverju slíku?
„Það er allavega það sem ég ætla mér að gera. Í fyrsta lagi er fyrirtækjamenningin hér að mörgu leyti mjög sterk og við verðum að byggja á því. Það voru mistök í þessari framkvæmd og við verðum að tryggja að áhættumenningin nái heilt yfir alla starfsemina, og að við styrkjum hana enn frekar.“
Fyrrverandi bankastjóri hefur sagt að umræðan um bankann hefði verið óvægin.
Finnst þér umræðan hafa verið óvægin?
„Ég held að einhverju marki, mögulega, en á sama tíma urðu þarna töluvert stór mistök sem vakin var athygli á. Það er bara eitthvað sem við tökum gríðarlega alvarlega og þurfum að henda okkur í að laga og tryggja að gerist ekki aftur,“ segir Jón Guðni.
Brotthvarf Birnu og önnur viðbrögð bankans skipti mestu máli. Fjölmargir telja hins vegar að það dugi ekki til.
„Jú ég held ég geti alveg sagt það fyrir hönd bankans að við biðjumst afsökunar á því sem misfórst.“
Taka áskorun VR alvarlega
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir ekki hægt að vera í viðskiptum við banka sem brjóti af sér með svo afgerandi hætti og bregðist ekki við því með viðeigandi hætti. Milljarða viðskiptum félagsins verði hætt ef bankinn taki ekki meira til hjá sér og biðji þjóðina afsökunar.
„Við skipum helming stjórnar í Lífeyrissjóði verzlunarmanna, við erum mjög stórir viðskiptavinir, bæði í gegnum lífeyrissjóðinn og stéttarfélagið. Við munum hvetja stjórn lífeyrissjóðsins til að íhuga viðskipti sín við bankann,“ sagði Ragnar Þór í samtali við fréttastofu í dag.
Inntur eftir viðbrögðum við þessu segir Jón Guðni:
„Það er náttúrulega eitthvað sem við þurfum að taka alvarlega og halda áfram að sinna okkar viðskiptavinum eins vel og við mögulega getum.“
Þegar hafi orðið mannabreytingar
Jón Guðni segir að mannabreytingar hafi nú þegar orðið hjá bankanum, aðspurður um fjölda stjórnenda sem komu að sölunni og starfa enn innan bankans.
„Ég ætla nú ekki að fara út í einhverjar tölur í því efni, en það hafa orðið töluverðar breytingar nú þegar.“
Og þessi endurskipulagning sem þú talar um að sé framundan, eru þar einhverjar mannabreytingar sem horft er til?
„Það er bara eitt af mínum fyrstu verkum að skoða það, hvaða breytingar við þurfum að gera nákvæmlega.“