Lífið

Steinarr Lár og Guðrún selja glæsihöllina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
dfsaf

Athafnamaðurinn og fyrrum eigandi Kúkú Campers, Steinarr Lár og Guðrún Magnúsdóttir hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur hafa sett glæsihöll sína við Kópavogsbraut til sölu og er ásett verð fyrir eignina 245 milljónir.

Um er að ræða 295 fermetra einbýlishús á eftirsóttum stað í Kópavogi með frístæðum bílskúr á 1600 fermetra lóð. Við garðinn er fallega gróinn garður og stórt bílaplan.

Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis.

Húsið er tveimur hæðum umvafið hlýlegum retro-stíl með sjarmerandi frönskum gluggum.

Neðri hæðin skiptist í forstofu, eldhús, tvær opnar stofur, borðstofu og þvottahús. Stofurýmin tvö eru rúmgóð og björt með kamínu í annarri þeirra. Þaðan er opið inn í borðstofa þar sem gengið er út á skjólgóða verönd.

Húsið er tæplega 300 fermetrar að stærð á tveimur hæðum.Fasteignaljósmyndun
Húsið var uppgert og stækkað árið 2016 þar sem skipt var um þak, hurðir og glugga.Fasteignaljósmyndun
Rúmgóðar og huggulegar svalir.
Notalegt að setjast í gufu eftr langan dag.Fasteignaljósmyndun

Á neðri hæðinni er rúmgott eldhús snyrtilegri hvítri innréttingu, gashelluborði og granít á borðum. Innangegnt er úr eldhúsi í þvottahús og geymslu.

Eldhús er með gashelluborði og granít á borði.Fasteignaljósmyndun
Sjónvarpstofan er notaleg og björt.Fasteignaljósmyndun
Baðherbergin eru tvö í húsinu.Fasteignaljósmyndun
Gengið er úr borðstofunni út á verönd.Fasteignaljósmyndun
Tvær samliggjandi stofur eru á neðri hæðinni.Fasteignaljósmyndun
Retro-stíll er áberandi víða um húsið.Fasteignaljósmyndun
Fallegir franskir gluggar eru í húsinu sem setja einstakan svip á húsið.Fasteignaljósmyndun
Kamína er í annarri stofunni sem skapar notalegt andrúmsloft.Fasteignaljósmyndun

Gengið er upp teppalagðan stiga sem leiðir að svefnherbergisálmu með fimm svefnherbergjum og rúmgóðu baðherbergi.

Útgengt er úr hjónaherberginu á suðursvalir sem eru að hluta til undir súð og á vestursvalir úr tveimur barnaherbergjum.

Hjónaherbergið er rúmgott með útgengi á suðursvalir.Fasteignaljósmyndun
Fimm svefnherbergi eru á efri hæð hússins. Fasteignaljósmyndun
Útgengt er úr tveimur herbergjum á vestursvalir.Fasteignaljósmyndun
Svefnherbergisgangurinn er málaður í fallega grænum lit.Fasteignaljósmyndun
Baðherbergið á erfi hæðinni er með baðkari og sturtu.Fasteignaljósmyndun
Á baðherbergi er sérsmíðuð innrétting undir handlaug, vegghengt salerni og flísar í hólf að hluta, mikrosement er á gólfum og veggjum að hluta.Fasteignaljósmyndun


Tengdar fréttir

Jafn miklar fjár­hags­á­hyggjur og þegar hann átti ekkert

Athafnamaðurinn Steinarr Lár segist hafa jafn miklar fjárhagsáhyggjur nú og þegar hann var blankur. Áhyggjurnar beinist fyrst og fremst að því hvað hann eigi að gera við eignir sínar og hvernig hann á að sinna þeim. 

Kúkú Campers í formlegt söluferli

Fimm ferðaþjónustufyrirtæki og eitt fasteignafélag, sem eru öll að hluta í eigu Steinars Lárs Steinarssonar, þar á meðal húsbílaleigan Kúkú Campers, hafa verið sett í formlegt söluferli.

Keyptu glæsihýsi í sendiráðahverfinu við Landakot

Grím­ur Garðars­son eig­andi Best­sell­er á Íslandi og Svan­hild­ur Nanna Vig­fús­dótt­ir fjárfestir hafa fest kaup á rúmlega fimm hundruð fermetra einbýlishúsi við Túngötu í Reykjavík. Húsið er staðsett við hlið franska og rússneska sendiráðsins í sannkölluðu sendiráðahverfi við Landakotstún.

Haf hjónin selja sögufræga miðbæjarperlu

Hjónin og eigendur hönnunarstúdíósins Haf studio, Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson hafa sett sögufræga séreign við Laufásveg til sölu.

Mikill munur á hækkun fast­eigna­mats milli hverfa

Staðahverfi í Grafarvogi er það hverfi í Reykjavík sem fasteignamat fjölbýlisíbúða hækkar mest í samkvæmt nýju fasteignamati Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Sérbýlið hækkar mest í Vesturbænum, vestan Bræðraborgarstígs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.