Lífið

Sagði já og fékk 350 milljóna króna hring

Máni Snær Þorláksson skrifar
Lauren Sánchez og Jeff Bezos hafa verið saman í um fimm ár.
Lauren Sánchez og Jeff Bezos hafa verið saman í um fimm ár. Getty/Karwai Tang

Jeff Bezos, stofnandi Amazon og einn ríkasti maður heims, bað fjölmiðlakonuna Lauren Sánchez um að giftast sér á dögunum. Hún sagði já og fékk við það hring sem sagður er kosta tvær og hálfa milljónir dollara. Það samsvarar um 350 milljónum í íslenskum krónum.

Bezos og Sánchez hafa verið saman í rúm fimm ár. Parið hefur enn ekki sagt opinberlega frá trúlofuninni en Page Six fullyrðir að hún hafi átt sér stað. Þó er ekki vitað nákvæmlega hvenær Bezos bað hennar. 

Parið sást slaka á saman á tugmilljarða snekkju Bezos um helgina, þar sást Sánchez með hringinn á baugfingri vinstri handar. 

Þau höfðu gert sér ferð til suðurhluta Frakklands og mætt á kvikmyndahátíðina í Cannes. Þar mættu þau saman á frumsýningu kvikmyndarinnar Killers of the Flower Moon. Það virðist þó vera sem Sánchez hafi ekki verið með hringinn er þau mættu á kvikmyndasýninguna.

Að undanförnu hafa Bezos og Sánchez reglulega eytt tíma saman á bátnum en hann varð tilbúinn í mars síðastliðnum. Bezos nefndi bátinn Koru og á það að tákna nýtt upphaf. Báturinn á að hafa kostað um hálfan milljarð dollara, um sjötíu milljarða í íslenskum krónum.

Parið fór til dæmis á snekkjunni til Ibiza í síðustu viku.Getty/MEGA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.