Lífið

Fertugur Bent skálaði við foss og naut í Hvammsvík

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Bent fagnaði fertugsafmælinu með vinum sínum í gær. Sjálfan afmælisdaginn ber svo upp á morgun.
Bent fagnaði fertugsafmælinu með vinum sínum í gær. Sjálfan afmælisdaginn ber svo upp á morgun.

Ágúst Bent rappari fagnaði fjörutíu ára afmæli sínu í góðra vina hópi á flakki um suðvesturhornið í gær. Vinir hans sungu Stuðmannalag honum til heiðurs við Þórufoss.

Hópurinn fékk sér í gogginn í höfuðborginni áður en lagt var í hann í langferðabíl þar sem tónlist úr smiðju XXX Rotweilerhunda var spiluð og vel tekið undir. Meðal gesta í fögnuðinum voru vinir Bents úr Árbænum og rappsenunni.

Erpur Eyvindarson, félagi Bents úr XXX Rotweilerhundum, var að sjálfsögðu í þrumustuði og það gilti sömuleiðis um Dóra DNA rímnaflæðismeistara. DJ Óli Dóri var á svæðinu, Bjarni Jónsson, York Underwood grínisti og Þorsteinn Lár Ragnarsson Rotweilerhundur og vallarþulur hjá Fylki svo einhverjir séu nefndir.

Tótibje
Ólidóri

Vinirnir sungu afmælissönginn fyrir Bent vin sinn við Þórufoss og þar hljómuðu einnig valdar línur úr laginu Haustið '75 með Stuðmönnum. Þar er sungið um mann sem er ekkert upp á að klaga, edrú alla daga sem ávallt borgar meðlagið. Mátti merkja kaldhæðni í því lagavali enda allir við skál þegar lagið var sungið í góðu gríni.

Hópurinn skellti sér svo í böðin hans Skúla Mogensen í Hvammsvík og virtist vera góð stemmning í hópnum sem taldi um 15-20 manns.

Bent var til umfjöllunar í þáttunum Rapp í Reykjavík á Stöð 2 árði 2016. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.