Erlent

Úr­­­helli síðustu tvo sólar­hringa meira en meðal­­­­­rigning yfir hálft ár

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa
Myndin er tekin í Lugo í Emilia Romagna héraði í dag.
Myndin er tekin í Lugo í Emilia Romagna héraði í dag. Getty/Masiello

Hátt í tuttugu þúsund hafa flúið heimili sín og þrettán farist vegna gríðarlegra flóða í norðausturhluta Ítalíu. Yfir tuttugu ár hafa flætt yfir bakka sína og á þriðja hundrað aurskriður féllu í nótt.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Ítalíu jafnast rigningarmagnið, sem féll síðustu tvo sólarhringa, við það sem yfirleitt rignir á hálfu ári á svæðinu.

Nær allar ár á svæðinu milli borgarinnar Rimini við norðausturströndina að borginni Bologna flæddu yfir bakka sína og 280 aurskriður hafa falllið.

Kallað hefur verið eftir því að flóðavarnir verði bættar.Grafík/Hjalti

Víða voru íbúðarhús ekki rýmd fyrr en á síðustu stundu og hafa björgunaraðgerðir staðið yfir í allan dag.

„Okkur var verulega brugðið því við búum hér bak við veggina á fyrstu hæð. Við óttuðumst að vatnið myndi flæða yfir þennan vegg. Þess vegna voru íbúarnir fluttir á brott frá öllum hæðum hússins um klukkan eitt eftir miðnætti,“ segir Claudia, íbúi í Faenza.

Emilia-Romagna kappaksturinn í Imola var blásinn af vegna flóðanna. Tónleikar Bruce Springsteen, sem eiga að fara fram í Ferrara í kvöld, eru enn á dagskrá. Skipuleggjendur hafa hins vegar verið harðlega gagnrýndir fyrir að fresta ekki tónleikunum. Fimmtíu þúsund hafa keypt miða á tónleikana en ólíklegt er talið að svo margir komist vegna náttúruhamfaranna.

Þá hafa margir nú kallað eftir að gerð verði viðbragðsáætlun við loftslagstengdum hamförum sem gildi fyrir allt landið og að flóðvarnir verði bættar.

„Satt best að segja þarf að grípa til nýrra aðgerða á sviði flóðavarna um allt land. Það sem gerðist í Emilia-Romagna átti sér einnig stað í Ischia en með öðrum hætti þó. Slíkt gæti einnig gerst hvar sem er í landinu,“ sagði Nello Musumeci almannavarnaráðherra Ítalíu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×