Tindastóll dregur 11. flokk úr úrslitakeppni vegna samskiptaleysis Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. apríl 2023 22:35 Skilaboðin sem Vestri fékk frá Tindastóli í upphafi tímabils þar sem Vestra-menn fá leyfi fyrir því að nota einn eldri leikmann. Samsett Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur ákveðið að draga lið sitt úr úrslitakeppni Íslandsmótsins í 11. flokki karla í körfubolta vegna samskiptaleysis milli aðila innan félagsins.
Greint var frá því hér á Vísi fyrr í kvöld að liði Tindastóls í 11. flokki karla í körfubolta hafi verið dæmdir tveir sigrar gegn Vestra í aldursflokknum sökum þess að Vestri hafi notað ólöglegan leikmann í leikjunum. Þórir Guðmundsson, formaður barna- og unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Vestra, sagði frá því á Facebook-síðu sinni fyrr í kvöld að félagið hefði gert „heiðursmannasamkomulag“ við öll önnur lið í deildinni um að fá að nota leikmanninn sem var orðinn of gamall til að spila í 11. flokki. Leikmaðurinn hafi verið orðinn einn eftir í sínum árgangi og því hafi félagið ákveðið að fara þá leið að óska eftir því að hann fengi að spila með yngri strákum. Dagur Þór Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, ritaði svo færslu á Facebook-síðu Tindastóls í kvöld þar sem greint er frá því að Tindastóll muni draga lið sitt úr úrslitakeppni 2. deildar flokksins. Þar segir að ástæðan sé sú að vegna samskiptaleysis á milli aðila innan félagsins hafi verið gerðar athugasemdir við liðsskipan Vestra með þeim afleiðingum að Tindastóli var dæmdur sigur. Sigrarnir sem Tindastóli voru dæmdir gerðu það að verkum að liðið stökk upp fyrir Vestra í töflunni og í úrslitakeppnissæti á kostnað Vestra. „Tindastóll biðst velvirðingar á þessum mistökum og óskar Vestra velgengni í undanúrslitum mótsins,“ segir að lokum í tilkynningu Tindastóls.
Körfubolti Vestri Tindastóll Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira