Lífið

Gat ekki hætt að fróa sér í flug­vélinni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Rapparinn Desiigner ber að ofan á sviði í Staples-höllinni árið 2017.
Rapparinn Desiigner ber að ofan á sviði í Staples-höllinni árið 2017. Getty/Bennett Raglin

Rapparinn Desiigner hefur verið ákærður fyrir að fróa sér hamslaust fyrir framan flugfreyjur í flugferð í síðustu viku. Rapparinn segir lyf sem hann tók hafa haft slæm áhrif á sig. Hann er nú búinn að aflýsa tónleikaröð sinni og ætlar að leita sér hjálpar vegna andlegra erfiðleika.

Atvikið átti sér stað í flugvél Delta sem var á leið frá Tókýó til Minneapolis. Hinn 25 ára gamli Desiigner, réttu nafni Sidney Royel Selby III, var þar á leið heim úr ferðalagi um Asíu.

Í dómsskjölum sem TMZ sem hefur undir höndum kemur fram að Desiigner hafi verið á fyrsta farrými þegar hann tók út getnaðarlim sinn í miðju flugi og byrjaði að fróa sér í sæti sínu. Flugfreyjur Delta báðu hann ítrekað að hætta því að fróa sér en hann hlýddi ekki. 

Að lokum þurfti að færa rapparann aftast í flugvélina þar sem tveir vina hans fylgdust með honum. Í skjali FBI kemur fram að þegar hann reis úr sæti sínu hafi vaselíndolla dottið á gólfið.

Rapparinn Desiigner á hægri hönd ásamt tónlistarmanninum Kanye West á MTV verðlaunahátíðinni 2016. Kanye West kom Desiigner á kortið þegar Desiigner söng inn á lagið Father Stretch My Hands Part II á plötunni The Life of Pablo.Getty/Kvein Mazur

Sagðist hafa verið „grjótharður“ og kenndi kynlífsleysi um

Þegar flugvélin lenti í Minneapolis tók lögreglan á móti Desiigner og fór hann í skýrslutöku áður en honum var sleppt úr haldi. 

Við skýrslutöku sagði hann að ástæðan fyrir sjálfsfróuninni hafi verið að hann „hafi ekki fengið nægilega mikið á broddinn“ í Japan og hann hafi verið „grjótharður“ þegar hann kom í flugvélina. Þá sagðist hann einnig hafa örvast kynferðislega við að sjá eina flugfreyjuna og ákveðið að hefjast handa.

Í skýrslu lögreglunnar kemur einnig fram að Desiigner hafi sagst ekki vera undir áhrifum lyfja. Honum hefðu verið áskrifuð lyf í Taílandi en hann hefði ekki tekið þau. Þá kemur fram í skjölunum að hann hafi ekki sýnt neina skerta færni til að tjá sig eða bregðast við spurningum.

Lyf valdur að „efnafræðilegu ójafnvægi“

Þær upplýsingar stangast á við það sem rapparinn sagði um atvikið opinberlega. 

Í yfirlýsingu sem Desiigner gaf út á Instagram á fimmtudaginn í síðustu viku sagðist hann hafa veikst á ferðalagi sínu í Taílandi og fengið áskrifuð lyf vegna veikindanna. Hann taldi þau hafa valdið „efnafræðilegu ójafnvægi“ í líkama hans og verið valdur að atvikinu.

Hér má sjá yfirlýsingu Desiigner um atvikið.Skjáskot

Í yfirlýsingunni sagðist hann ekki hafa verið í lagi andlega undanfarna mánuði og hann hafi ekki gert sér grein fyrir vandamálum sínum fyrr en nú. Hann sagðist skammast sín fyrir atvikið og að hann ætli að leggjast inn á viðeigandi stofnun til að fá hjálp. 

Einnig sagðist hann ætla að aflýsa öllum framtíðartónleikum sínum þar til annað kæmi í ljós. Þá sagði hann geðheilbrigði vera mikilvægt og bað fólk að biðja fyrir sér. 

„Ef ykkur líður ekki eins og ykkur sjálfum þá ættuð þið að leita ykkur hjálpar,“ sagði að lokum í yfirlýsingu rapparans.

Rapparanum hefur ekkert gengið neitt sérstaklega vel á sviði tónlistarinnar frá því að fyrsta lag hans, smellurinn Panda, kom út árið 2016. Í raun mætti ganga svo langt að kalla hann „one hit wonder“. Hér fyrir neðan má heyra Panda sem kom honum á kortið:


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.