FDA staðfestir að það sé enn með svarbréf Alvotech „til skoðunar“
![Liðlega 170 milljarðar þurrkuðust út af markaðsvirði Alvotech í viðskiptum á föstudag og mánudag – og felldi það um leið úr sessi sem hið verðmætasta í Kauphöllinni.](https://www.visir.is/i/AFEFE19886AEA337ED0C4815525B68CFBF725247F32F6521101AE5D27D363E57_713x0.jpg)
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur staðfest við Alvotech að eftirlitið sé ekki enn búið að yfirfara að fullu ítarlegt svar sem íslenska líftæknifélagið sendi eftirlitinu í upphafi mánaðarins vegna ábendinga sem voru gerðar eftir endurúttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins. Eftir að hafa hrunið í verði um þriðjung á tveimur viðskiptadögum hækkaði gengi bréfa Alvotech um liðlega átta prósent í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni í morgun.