Innlent

„Leiðinlegar fréttir fyrir samfélagið í heild“

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Kjartan segir flugið hafa verið mikla lyftistöng fyrir Norðurlandið allt. 
Kjartan segir flugið hafa verið mikla lyftistöng fyrir Norðurlandið allt.  Niceair

Áhrif vandræða flugfélagsins Niceair á ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi eru enn óljós segir framkvæmdastjóri Skógarbaðana í Eyjafirði. Flugið hafi verið lyftistöng fyrir samfélagið og brotthvarfið því mikil vonbrigði.

Norðlenska flugfélagið Niceair sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem kom fram að fyrirtækið hefði ekki lengur aðgang að flugvél sinni vegna vandræða flugrekstraraðila félagsins og þyrfti því að gera hlé á allri sinni starfsemi. Allt flug félagsins var fellt niður í kjölfarið og kom fram í máli framkvæmdastjóra niceair í gær að mjög tvísýnt væri hvort félagið myndi aftur hefja sig til flugs.

Kjartan Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skógarbaðanna segir eftirsjá af félaginu ef stöðvunin reynist varanleg.

„Þetta hefur gert gífurlega jákvæða hluti fyrir svæðið og hefur komið norðurlandinu meira á kortið. Að hafa beint flug frá Akureyri til Danmerkur og Spánar, það hefði verið frábært að komast inn á Bretlandsmarkað líka. En bara eitt og sér að vera með flugfélag hérna sem er að fljúga út það gerir það að verkum að við verðum staður sem fólki langar að koma og heimsækja. Þegar svona aðili kemur inn hefur það mjög jákvæð áhrif.“

Áhrifin verði einhver en það sé ekki alveg ljóst hver þau eru.

„Þetta mun hafa áhrif á ýmsa aðila. Það eru mikið af gistinóttum sem eru hreinlega bókaðar fyrir sumarið en maður veit ekki hvernig áhrif þetta hefur á það.“

Hann leyfir sér þó að vera bjartsýnn á sumarið.

„Vissulega eru þetta leiðinlegar fréttir fyrir samfélagið í heild. En það er nú yfirleitt bjartsýni í samfélaginu hérna svo maður leyfir sér að vona að þeir nái að leysa þennan hnút.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×