Sandra María var langmarkahæsti leikmaður Lengjubikars kvenna með ellefu mörk í aðeins fimm leikjum. Hún skoraði fjórum mörkum meira en sú næsta sem var Bryndís Arna Níelsdóttir hjá Val með sjö mörk.
Sandra hefur svo sannarlega verið drottningin af Boganum í þessum Lengjubikar því hún skoraði þrennu í öllum heimaleikjum Þór/KA sem voru allir spilaðir í Boganum.
Drottningin af Boganum skoraði þrennu í 6-1 sigri á FH 12. febrúar, þá þrennu í 4-3 sigri á Íslandsmeisturum Vals 4. mars og loks þrennu í 7-2 sigri á Selfossi 19. mars.
Sandra skoraði líka í hinum tveimur leikjunum því hún skoraði fyrsta markið í 3-1 útisigri á KR 25. febrúar og kom Þór/KA í 1-0 í 3-1 tapu á móti Þrótti í Egilshöllinni 10. mars síðastliðinn.
Sandra kom til baka í fyrrasumar eftir barneignarfrí en hafði þar áður verið í atvinnumennsku í Þýskalandi. Þegar Sandra María spilaði úti þá var hún í íslenska landsliðinu en hefur ekki verið valin í landsliðið síðan að hún átti barnið.
Sandra hefur hins vegar sýnt með frammistöðu sinni í Lengjubikarnum að hún er komin aftur í góða gamla markaformið sitt og hlýtur að vera farin að banka á landsliðsdyrnar.
Undanúrslit Lengjubikars kvenna fara fram á morgun og á laugardaginn en báðir leikir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport.
Leikur Breiðabliks og Þór/KA fer fram á morgun klukkan 17.30 á Kópavogsvelli (Sýndur á Stöð 2 Sport 5) og leikur Þróttar og Stjörnunnar fer fram á Þróttheimagrasinu klukkan 14.00 á laugardaginn (Sýndur á Stöð 2 Sport).
- Flest mörk í riðlakeppni Lengjubikars kvenna 2023:
- 11 - Sandra María Jessen, Þór/KA
- 7 - Bryndís Arna Níelsdóttir, Val
- 6 - Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki
- 6 - Birta Georgsdóttir, Breiðabliki
- 6 - Taylor Marie Ziemer, Breiðabliki
- 5 - Freyja Karín Þorvarðardóttir, Þrótti
- 5 - Katla Tryggvadóttir, Þrótti
- 4 - Þórdís Elva Ágústsdóttir, Val