Viðskipti innlent

36 á­fanga­staðir hjá Icelandair næsta vetur

Bjarki Sigurðsson skrifar
Um er að ræða umfangsmestu vetraráætlun í sögu Icelandair.
Um er að ræða umfangsmestu vetraráætlun í sögu Icelandair. Vísir/Vilhelm

Flugfélagið Icelandair býður farþegum sínum flugferðir til 36 áfangastaða veturinn 2023 til 2024. Aukning á áætluðu sætaframboði á tímabilinu er 20 til 25 prósent. Í fyrsta sinn boðið upp á dagflug til New York og Boston yfir vetrartímann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en vetraráætlun þeirra var kynnt í dag. Fimm áfangastaðir bætast nú í flóru heilsársáfangastaða, Róm, Barselóna, Raleigh Durham, Vancouver og Baltimore. 

Þá var tíðni flugferða til sjö áfangastaða aukin. Það eru Munchen, Tenerife, Minneapolis, Chicago, Prag, Boston og New York. 

„Vetraráætlun okkar hefur aldrei verið umfangsmeiri og það er mjög gleðilegt og til marks um sterka eftirspurn og metnaðarfulla þróun á leiðakerfi félagsins. Icelandair hefur um árabil lagt áherslu á að efla tengingar við Ísland yfir vetrartímann enda er það mikið hagsmunamál fyrir íslenska ferðaþjónustu og atvinnulíf, auk þess sem það gerir okkur kleift að nýta okkar innviði og flugflota betur,“ er haft eftir Tómasi Ingasyni, framkvæmdastjóra leiðakerfis og sölu, í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×