Erlent

Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu

Máni Snær Þorláksson skrifar
Jarðskjálfti að stærð 6,8 skók Ekvador í dag. Að minnsta kosti þrettán létu lífið í skjálftanum.
Jarðskjálfti að stærð 6,8 skók Ekvador í dag. Að minnsta kosti þrettán létu lífið í skjálftanum. AP/Jorge Sanchez

Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum.

Samkvæmt AP eru staðfest andlát vegna skjálftans nú þrettán talsins. Tólf létu lífið í Ekvador og einn í Perú. Sú sem lést í Perú er fjögurra ára gömul stelpa sem lést vegna höfuðáverka sem hún fékk er heimili hennar hrundi. Stelpan átti heima á Tumbes svæðinu en svæðið eru við landamæri Perú og Ekvador.

Þá hefur verið greint frá því að einn einstaklingur hafi látist í Ekvador er veggur hrundi á bíl hans. Einnig hefur komið fram að þrjú létust er turn sem hélt uppi öryggismyndavélum féll á þau.

Vottar aðstandendum samúð sína

Guillermo Lasso, forseti Ekvador, vottar aðstandendum þeirra sem létu lífið samúð sína í yfirlýsingu sem hann birti á samfélagsmiðlinum Twitter fyrr í kvöld.

Lasso segir í yfirlýsingunni að yfirvöld séu að vinna hörðum höndum að því að laga skemmdirnar sem urðu vegna skjálftans, nóg sé til af fjármunum til að fara strax í þá vinnu.

Ljóst er að fjölmörg mannvirki skemmdust í skjálftanum. Samkvæmt Reuters urðu skemmdir meðal annars á heimilum fólks, skólum og sjúkrahúsum. Einhverjar skemmdir urðu á Santa Rosa flugvellinum í borginni Machala en ekki þurfti að stöðva starfsemi þar.

Hlupu út á götu

Íbúar í Ekvador sem fjölmiðlar hafa rætt við í kjölfar skjálftans lýsa mikilli skelfingu sem greip um sig er skjálftinn reið yfir. „Við hlupum öll út á götu, við vorum mjög hrædd,“ er haft eftir Ernesto Alvarado, íbúa á eyjunni Puná, í frétt Reuters en upptök jarðskjálftans voru í grennd við eyjuna.

Magaly Escandon, sem rekur fyrirtæki í ekvadorsku borginni Cuenca, segir svipaða sögu í samtali við AFP:

„Ég hljóp út á götu því ég sá fólk sem var skelfingu lostið koma sér út úr bílnum sínum og hlaupa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×