Viðskipti innlent

Sex vilja verða vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eftir­lits

Atli Ísleifsson skrifar
Embættið var auglýst laust til umsóknar 7. febrúar síðastliðinn.
Embættið var auglýst laust til umsóknar 7. febrúar síðastliðinn. Vísir/hanna

Sex umsóknir bárust um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits Seðlabankans en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 7. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 27. febrúar. 

Unnur Gunnarsdóttir tilkynnti fyrr á árinu að hún hafi ætlað sér að láta af embætti.

Á vef forsætisráðuneytisins segir að umsækjendur um embættið séu:

  • Ásgeir B. Torfason, verkefnisstjóri
  • Björk Sigurgísladóttir, framkvæmdastjóri
  • Gísli Óttarsson, framkvæmdastjóri
  • Guðrún Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri
  • Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri
  • Sigurður Erlingsson, fv. forstjóri

„Forsætisráðherra skipar í embættið til fimm ára að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra.

Þriggja manna hæfnisnefnd sem fjármála- og efnahagsráðherra skipar mun fara yfir umsóknir og meta hæfni umsækjenda, sbr. 7. mgr. 4. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Einn nefndarmanna skal skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabankans en formaður er skipaður án tilnefningar,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×