Innlent

Vilja að­stoð við að endur­­byggja sögu­­frægt hús í Vík í Mýr­­dal

Bjarki Sigurðsson skrifar
Í Halldórsbúð var starfrækt fyrsta verslun Víkur í Mýrdal.
Í Halldórsbúð var starfrækt fyrsta verslun Víkur í Mýrdal. Kötlusetur

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur óskað eftir samstarfi við ríkið til að byggja upp Halldórsbúð í Vík. Þar var starfrækt fyrsta verslun bæjarins en stefnt er að því að reka þar stofnun fræða eða þekkingarsetur. 

Halldórsbúð var reist árið 1903 og rak þar Halldór Jónsson verslun sína. Synir hans tóku við rekstrinum eftir andlát hans og ráku allt til ársins 1950. Þá tók Verslunarfélag Vestur-Skaftfellinga við rekstrinum og rak verslunina í 21 ár þegar hún var flutt í nýtt verslunar hús. 

Húsið hefur síðan þá gegnt nokkrum hlutverkum, meðal annars var þar Prjónastofan Katla, véla- og viðgerðarverkstæði og pakkhús. Engin starfsemi hefur verið í húsinu síðan árið 1997.

Árið 2021 hóf Mýrdalshreppur ásamt Kötlusetri að undirbúa endurbyggingu Halldórsbúðar. Steyptur hefur verið grunnur að nýju húsi en ekki hefur tekist að ljúka við bygginguna vegna fjölmargra verkefna sveitarfélagsins.

Meðal verkefna sem í gangi eru í sveitarfélaginu eru íbúðaverkefni, deili- og aðalskipulagsgerð, efling starfs á sviði fjölmenningar í leik- og grunnskólum og fleira. 

Sveitarstjórn Mýrdalshrepp sér ekki fram á að geta lokið framkvæmdum Halldórsbúðar án aðstoðar frá ríkinu. Því hefur stjórnin óskað eftir því að ríkið komi með beinum hætti að fjármögnun framkvæmdanna. 

Í bréfi sem Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýdalshrepps, sendi á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra er einnig óskað eftir því að ráðuneyti mennta- og barnamála eða ráðuneyti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar komi að því að undirbúa stofnun fræða eða þekkingarsetur sem starfrækt yrði í Halldórsbúð. 

Áherslur setursins gætu tengst einstaka samsetningu sveitarfélagsins en hvergi annars staðar á landinu má finna hærra hlutfall erlendra íbúa. Um fimmtíu prósent íbúa Mýrdalshrepps eru erlendir. 

„Með þessu móti yrði endurbyggð Halldórsbúð að nýju lífæð sveitarfélagsins og stuðlað að því að þær öru breytingar sem eru yfirstandandi í sveitarfélaginu skili okkur sjálfbæru samfélagi til framtíðar,“ segir í bréfinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×