Lögregla eltist við bifreiða-, ferðatösku- og stálplötuþjófa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. febrúar 2023 06:36 Tveir menn voru staðnir að því að stela stálplötum. Vísir/Vilhelm Tveir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar lögreglu barst tilkynning um ferðir bifreiðar sem hafði áður verið tilkynnt stolin. Búið var að skipta um skráningarnúmer á bílnum og ökumaður og farþegi gista nú fangageymslu.
Lögregla stöðvaði marga í umferðinni í gærkvöldi og nótt grunaða um akstur undir áhrifum vímuefna. Þá var tilkynnt um þjófnað á ferðatöskum á gistiheimili í miðborginni og óvelkominn einstakling á hóteli í póstnúmerinu 105. Í póstnúmerinu 103, sem meðal annars nær yfir Kringluna, var tilkynnt um þjófnað í verslunarmiðstöð en grunuðu reyndust undir sakhæfisaldri og var málið unnið í samráði við foreldra og barnaverndaryfirvöldum gert viðvart. Tilkynnt var um grunsamlegar mannaferðir í Hafnarfirði en engar frekari upplýsingar fylgja um atvikið í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar. Þá var tilkynnt um ölvaðan einstaling sem virtist ekki geta haldið sér uppréttum á göngustíg og var honum ekið heim. Í póstnúmerinu 221 voru tveir staðnir að þjófnaði á stálplötum. Þeir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknarhagsmuna. Öðrum ölvuðum einstakling sem var á gangi í póstnúmerinu 112 var ekið til síns heima og þá barst tilkynning um ölvaðan einstakling í stigagangi í Kópavogi. Í Kópavogi var einnig tilkynnt um einstakling sem var ógnað af tveimur öðrum með hnífi. Höfðu þeir af honum fjármuni. Málið er í rannsókn.
Lögreglumál Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Fleiri fréttir Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Sjá meira