Neytendur

Svona er staðan á bensín­stöðvunum

Kolbeinn Tumi Daðason og Máni Snær Þorláksson skrifa
Frá bensínstöð Orkunnar á Reykjanesbraut þar sem enn er hægt að fá bensín.
Frá bensínstöð Orkunnar á Reykjanesbraut þar sem enn er hægt að fá bensín. vísir/Vilhelm

Olíufyrirtækið N1 hefur lokað fyrir afgreiðslu á bensíni eða dísel á nokkrum stöðvum á suðvesturhorninu. Tankar eru víða að tæmast.

Verkfall bílstjóra á höfuðborgarsvæðinu hjá olíufélögunum skall á klukkan tólf á hádegi. Von er á því að bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu tæmist á næstu sólarhringum. Álag hefur verið á bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu í vikunni. Borið hefur á því að fólk hafi mætt með stóra tanka og fyllt til lengri tíma.

Til að koma í veg fyrir að fólk fari í fýluferðir á bensínstöðvar með tóma tanka hafa fyrirtækin brugðið á það ráð að birta upplýsingar um stöðuna á dælunum sínum. Á heimasíðum N1, Olís og Orkunnar má nú nálgast upplýsingar um hvaða dælum er búið að loka. Olís bætti þó um betur og sýnir nánari upplýsingar, hvar er nóg af eldsneyti eftir, hvar það mun klárast á næstunni og hvar það er búið. Allar stöðvar Atlantsolíu eru enn með bensín.

Hér má sjá slóðir á stöðuna hjá bensínstöðvunum:

Litað dísel búið í Þorlákshöfn og lokað vegna leigubíla í Fellsmúla

Fram kemur á heimasíðu N1 að nú sé ekki hægt að fá 95 oktana bensín í Skógarlind og á Flúðum. Á Flúðum, Brautarhól og Vallarheiði er ekki hægt að fá dísel. Þá hefur Orkan takmarkað aðgang að stöð sinni í Fellsmúla en þar fá aðeins leigubílar að fylla á bíla sína. Ekki er hægt fá litað dísel hjá Olís í Þorlákshöfn.

Forstjóri Skeljungs sagði í viðtali við fréttastofu í morgun að fyrstu stöðvarnar væru að tæmast hjá fyrirtækinu.

Umhverfisstofnun hefur minnt fólk á að strangar reglur gilda um geymslu bensíns en borið hefur á því að fólk sé að hamstra bensín á stöðvunum.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sagði á baráttufundi með félagsmönnum í hádeginu vonast til þess að viðærður færu að ganga betur. Forsvarsmenn Eflingar og Samtaka atvinnulífsins funda með Ástráði Haraldssyni, nýjum sáttasemjara í málinu, í Karphúsinu í dag.


Tengdar fréttir

Varar fólk við að hamstra elds­neyti

Framkvæmdastjóri Skeljungs segir ljóst að fólk sé farið að hamstra eldsneyti vegna yfirvofandi verkfalls olíubílstjóra. Slökkviliðsstjóri segir hamstrið vera varasamt og mælir með því að fólk sleppi því.

Landsmenn minntir á strangar reglur er varða geymslu á bensíni

Umhverfisstofnun minnir landsmenn á að olíu skal meðhöndla með varúð og gæta þess að hún komist ekki með neinum hætti út í jarðveg, niðurföll, frárennslislagnir, vatnsföll eða aðra staði þar sem hún getur dreifst um og valdið mengun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×